Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | fim. 17. jan. 2008

Volvo S80 Executive er birtingarmynd sænskra gæða og glæsileika

Volvo S80 er flaggskip Volvo Cars.
Volvo S80 er flaggskip Volvo Cars.
Í gegnum söguna hefur munaður staðið fyrir það sem sjaldgæft er og dýrmætt. Á Vesturlöndum hefur skapast þörf fyrir nýjan munað sem er án verðmiða eins og þögn, tími og traust. Með Volvo S80 Executive hefur Volvo tekist að bjóða upp á þennan nýja munað án þess þó, að gleyma kjarnagildum fyrirtækisins, öryggi og nútímalegri hönnun.

Innblástur að hönnun S80 Executive

Silvia Güllsdorf, verkefnastjóri hins nýja S80 Executive, segir hönnun bílsins hafa fengið innblástur frá öðrum sænskum gæðum og gildum. Kyrrð náttúrunnar, virðing fyrir umhverfinu, mikið notendagildi og sú trú að sönn fegurð komi að innan! Svíar vilja stílhreina skartgripi frekar en sverar gullkeðjur. Sænsk húsgögn eru þekkt fyrir einfaldleika og hátt notagildi.

Einkenni sænsks glæsileika

Volvo S80 Executive er samspil sænskra gæða og glæsileika - hljóðlátur, stílhreinn, notendavænn bíll sem sækir hönnun sína í sænska arfleið.

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli