Nú annað árið í röð fær Volvo titilinn "Besti bílaframleiðandinn".
Þessi keppni um öruggasta bílaframleiðandann er haldin árlega á vegum bresku tryggingarfélöganna (British Insurance Car Security Awards eða BISCA), og er kynnt af Thatcham, rannsóknarmiðstöð árekstrarvarna í Bretlandi.
Viðurkenningin "Besti bílaframleiðandinn" fær sá framleiðandi, "sem með flestum tegundum býður uppá þau öryggiskerfi sem krafist er af samtökunum."
Verðlaunin eru veitt til að vekja fólk til umhugsunar á öryggi bíla og sýna metnað bílaframleiðenda í framleiðslu öruggari bíla, og er styrkt af öllum samtökum tryggingarmála í Bretlandi.
Hugh Reid, framkvæmdarstjóri Volvo Car UK Limited hafði þetta að segja:
" Við hjá Volvo erum himinlifandi yfir að hljóta aftur verðlaunin sem Besti bílaframleiðandinn í þessu árlega hófi BISCA. Öryggi er annað mikilvægt og persónulegt dæmi, um staðfestu Volvo í því að bjóða eingöngu uppá það besta í öryggi, gæðum og hönnun, og þessi viðurkenning sannfærir viðskiptavini enn frekar hversu góður kostur Volvo er".
Staðalbúnaður eins og ræsivörn og tvílæsing hurða fylgt eftir með búnaði eins og neyðarhnapp í fjarstýringu, heimreiðarljósi, og nálgunarljósi til að lýsa upp svæðið umhverfis bílinn þegar maður kemur að eða fer frá bílnum. Ásamt möguleika á búnaði eins og öryggisgleri í hliðarrúðum fyrir flestar tegundir Volvo bíla.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan