19. maí 2012
Volvo
|
mið. 23. maí 2007
Járnhringurinn - tákn Volvo í 80 ár
Upphaflegt merki Volvo
Fyrsti farþegabíll Volvo leit dagsins ljós fyrir áttatíu árum, þann 14. apríl 1927. Á honum var merkingin ‘VOLVO GOTHENBURG SWEDEN’ í hvítum bókstöfum í gullramma á bláum borða sem umkringdur var hinum fræga járnhring Volvo. Vörumerkið var hannað af sænska hönnuðinum Karl Erik Forsberg. Nafnið er á hinn bóginn latneskt og þýðir „ég rúlla“ eða velt (áfram), sem skýrir e.t.v. heiti fyrrum umboðsaðila Volvo á Íslandi, en það fyrirtæki hét Veltir.
Eigin vottun
Sænskt járn var hornsteinn fyrir stofnun Volvo á sínum tíma. Járnhringurinn framan á Volvobifreiðum var því merki sem fól í sér eigin gæðavottun Volvo frá upphafi – táknaði öryggi og gæðavitund Volvo. Hringurinn myndaði öruggan grunn fyrir Volvo nafnið eins og það birtist í hringnum í hvítum bókstöfum á bláum borða. Úr járnhringnum vísaði svo ör upp í himininn, efst til hægri, eins og til að tákna þá framsækni sem átti eftir að einkenna framtíð Volvo.
Tákn plánetunnar Mars
Örin er eitt af elstu myndleturstáknum mannkynsins og var tákn plánetunnar Mars í Róm til forna. Í Svíþjóð hefur járnhringurinn og járnörin verið tákn járnframleiðslu frá því elstu menn muna. Sænskt járn þótti þá og þykir enn eitt hið allra besta í heiminum – er sterkt og öruggt – og þetta vildu stofnendur Volvo minna á með hringnum og örinni.
Merkið þróast í áranna rás
Tengingin við Gautaborg hvarf fljótt og líka gullramminn, en annað hélt sér. Skáborða inni í hringnum var svo bætt við til að festa járnhringinn á grillið – og er hann nú ómissandi hluti ímyndar Volvo vörubíla þar sem til þeirra sést hvar sem er í heiminum.
Í vörslu Volvo Trademark Holding AB
Síðan Volvo AB seldi Volvo Car Corporation til Ford Motor Corporation hafa bæði félögin notað þetta þekkta vörumerki, en það er geymt hjá sérstöku félagi sem heitir Volvo Trademark Holding AB sem er í jafnri eigu Volvo og Ford. Leyfi til notkunar á nafninu er í höndum Leif Johansson, forstjóra Volvo AB og Allan Mulally frá Ford Motor.
Nánari upplýsingar