Vörumerkið "Volvo" heldur uppá 90 ára afmæli í þessum mánuði.
Eins og öll bestu alþjóðlegu vörumerkin, var "Volvo" merkið vandlega valið vegna þess að það var einfalt, kraftmikið og auðvelt í framburði á öllum tungumálum. Það þýðir "ég rúlla" á Latínu, sem var mjög við hæfi fyrir kúlulegurnar frá sænska fyrirtækinu, Svenska Kullagerfabriken (SKF), sem skráði nafnið opinberlega í Stokkhólmi 22 júní, 1915.
Ellefu árum síðar árið 1926, lagði áhugasamur starfsmaður SKF, Assar Gabrielsson til við stjórn fyrirtækisins að fara út í framleiðslu á sænskum bíl. Ásamt vini sínum Gustaf Larson, sem var vélfræðingur og hafði áður unnið fyrir Morris í Englandi, fengu þeir samþykki stjórnar SKF og fjárhagslega tryggingu, ásamt lítinn hluta af húsnæðinu og nafnið Volvo. Eftir að hafa útilokað upphaflegu tillögurnar um "GL" eða "Larson" eftir nöfnum þeirra, var vörumerkið "Volvo" fyrst notað á bíl, ÖV4 - með gælunafnið Jakob - árið 1927, og hefur verið notað æ síðan.
Gabrielsson og Larson höfðu sérstakar hugmyndir um bíla. Auk þess að skilja möguleikana fyrir mannkynið sem bílar bjuggu yfir, jafnvel á þriðja áratugnum, skynjuðu þeir hætturnar sem gátu skapast, og því varð öryggi eitt af grunnatriðum í hönnun þeirra og fræg er tilvitnun þeirra: "Bílum er ekið af fólki; þess vegna verður grunnreglan í okkar hönnun alltaf öryggi".
Á sama tíma, varð Volvo merkið til - skálína og járn tákn - sem enn er notað í dag. Járn táknið, hringur með ör í gegn, var vandlega valið vegna tengingar og styrks við sænskan járniðnað, og hafði einnig þann kost að tákna guð velferðar og plánetuna Mars í rómverska heimsveldinu.
Í þau 90 ár síðan Volvo var fyrst skráð, hefur það orðið að alþjóðlegri framleiðslu og virt vörumerki á heimsvísu. Bílaframleiðsla Volvo hefur fylgt meginreglum sínum með metfjölda uppfinninga og framkallað þannig orðstír sem leiðandi afl í öryggi bíla. Og 78 árum síðar, hafa u.þ.b 13.5 milljónir Volvo bíla verið framleiddir, af þeim eru u.þ.b 8 milljónir enn í notkun.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan