Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | þri. 24. apr. 2007

Nýir Volvo S40 og Volvo V50 væntanlegir

Brimborg mun í sumar kynna nýja Volvo S40 og Volvo V50. Þessir vinsælu fjölskyldubílar fá andlitslyftingu með breytingu á framhluta bílanna og verða meira aðgreindir í samræmi við nýja hönnunarstefnu Volvo. Volvo S40 mun sækja útlit sitt til stóra bróður, Volvo S80, meðan Volvo V50 sækir sitt útlit til Volvo V70. Þetta eru síður en svo einu breytingarnar því auk nýs útlit í farþegarrými hefur farangursrýmið verið aukið, öryggisbúnaður er meiri nú en áður og vélaraflið sömuleiðis.

Séreinkennin undirstrikuð

„Þegar þessir bílar voru kynntir fyrir fjórum árum lögðum við áherslu á að þeir hefðu einkenni stærri útgáfu Volvo en í samþjöppuðu formi ef svo má að orði komast. Nú tökum við enn eitt skref í átt að þroskaðra útliti og undirstrikum séreinkenni bílanna enn frekar. Volvo S40 færist nær útliti Volvo S80 en Volvo V50 er nú líkari nýjum Volvo V70,“ segir Fredrik Arp, forstjóri Volvo.

Mikil söluaukning hjá Volvo

Fólksbílasala Volvo er í mikilli sókn á mörkuðum Evrópu og hófst sala á fyrsta ársfjórðungi með miklum krafti. Nam söluaukningin á tímabilinu 8,5% samanborðið við sama tímabil 2006 og er ljóst að salan mun aukast enn frekar á þessu ári þegar nýju gerðirnar verða komnar á markað.

Yngra fólk kaupir Volvo í síauknum mæli

Ný hönnunarstefna laðar sífellt fleira ungt fólk að vörumerki Volvo og á sama tíma hefur meðvitund yngra fólks fyrir öryggi og vistvænum gildum aukist sem eru einmitt megingildi Volvo. Fólki undir 35 ára aldri fjölgar um meira en 20 prósent í kaupandahópi Volvo S40 og hefur hlutfallið aukist frá 23 prósentum í 45. Einhleypir voru 30% kaupenda áður en eru nú 40% og meðalaldur kaupenda Volvo S40 hefur lækkað um 20%. Af þeim sem kaupa Volvo V50 höfðu 47% einnig hugleitt kaup á einhverri þýskri bíltegund og hefur þetta hlutfall vaxið úr 24% í samanburði við fyrirrennara hans.

Frumsýning hjá Brimborg í sumar

Áætlanir Brimborgar gera ráð fyrir að fyrirtækið frumsýni nýju gerðirnar í sumar en unnið er að undirbúningi pantana og samræmingu á staðalbúnaði við aðrar gerðir Volvo bíla. Stefnt er að því að upplýsingar um verð og búnað verði komnar á vef Brimborgar í lok maí og þá verði hægt að taka við pöntunum.

Fjölskyldufólk velur Volvo S40 og V50

„Volvo S40 og Volvo V50 eru mjög mikilvægir bílar í vörulínu Volvo og hafa selst mjög vel hér á landi. Við sjáum sífellt yngra fjölskyldufólk taka ákvörðun um kaup á Volvo og er engin spurning að þar eiga gildi Volvo mikinn þátt en þau eru öryggi, umhverfi og gæði. Við erum mjög spennt fyrir þessum nýju bílum og sannfærð um að þeir verði jafnvel enn vinsælli en fyrri gerðir,“ segir Ágúst Hallvarðsson, sölustjóri Volvo.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli