Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | mán. 20. jún. 2005

Frábærar nýjar einbunudíselvélar frá Volvo

Með afnámi þungaskattsins á bíla með díselvélum verður venjulegur fjölskyldubíll með díselvél áhugaverður kostur

1.júlí 2005 breytist allt umhverfi fólksbíla með díselvélum þegar þungaskatturinn verður lagður af og olíugjaldið sett á.

Volvo býður uppá tvær nýjar díselvélar í S40 og V50 með svokallaðri samrásarinnsprautun (common rail injection). Þessar nýju vélar eru  hljóðlátar og gefa mikla snerpu á lágu snúningsvægi ásamt því að vera sérlega sparar á eldsneytið.

1.6 díselvélin er 110 hestöfl og 240 Nm í togi. Eyðslan er ekki nema 5.2 lítrar í blönduðum akstri.

2.0 díselvélin er 136 hestöfl og 320 Nm í togi. Eyðslan er ekki nema 5.6 lítrar í blönduðum akstri.

Nú er rétti tíminn að skoða það besta sem díseltæknin býður uppá.  Við höfum nú bíla með báðum þessum vélum til sýnis og  reynsluaksturs. Verðið kemur á óvart. Kynnið ykkur málið.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli