Árið byrjar vel hjá Volvo í Evrópu en alls seldust 41.423 fólksbílar frá Volvo á fyrstu tveimur mánuðum ársins. Það er aukning um tæplega sjö þúsund bíla frá fyrra ári eða 19,9%. Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Acea, samtökum bílaframleiðenda í Evrópu.
Bílasala í Evrópu dregst saman
Það er ekki einungis hér á landi sem bílasala hefur dregist saman frá fyrra ári, það sama á við um Evrópu sem heild. Reyndar er samdrátturinn óvíða jafn mikill og hér en árið 2006 var gífurlega gott í bílasölu á Íslandi. Það sem af er ári hefur nýskráðum fólksbílum í Evrópu fækkað um 1,2% samkvæmt tölum Acea en samkvæmt tölum af vef Umferðarstofu fækkaði nýskráningum fólksbifreiða um 39,2% á fyrstu tveimur mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra.
Fimmtungsaukning hjá Volvo á samdráttarmarkaði
Volvo hefur að undanförnu sett á markað bíltegundir sem hafa hlotið mikla athygli og er þessi mikla aukning - fimmtungur - þrátt fyrir að heildarmarkaður fyrir bíla hafi dregist saman, til marks um þá athygli og auknar vinsældir Volvo.
Nýir Volvo bílar
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan