Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | fös. 3. jún. 2005

Volvo með þægilegustu bílana.

Það var breska bílablaðið Auto Express sem stóð fyrir þessu vali nú fyrir stuttu. Valið fór þannig fram að 50.000 lesendur Auto Express sendu niðurstöður sínar til blaðsins.

Þægilegasti bíll Bretlands var valinn Volvo S60 en Volvo S80 og V70 lentu í þriðja og fjórða sæti. Í niðurstöðu Auto Express sagði m.a: "Aksturseiginleikar skipta ekki máli ef bíllinn er óþægilegur, þá er einfaldlega ekki gaman að keyra." Og heldur áfram: "Að þrauka til enda á löngu ferðalagi með verk í baki og stirða fætur nægir til að eyðileggja ferðalagið. Vel formuð sæti með marga stillimöguleika er málið, en það er samt merkilegt hversu margir bílaframleiðendur huga lítið að þessum þáttum."

Volvo hannar ekki sæti eingöngu til þæginda, heldur býður einnig uppá besta fáanlega öryggi. Öll sæti í Volvo eru búin WHIPS kerfinu, þar sem bakhluti sætisins færist til með líkamanum ef árekstur verður aftan frá og minnkar þar með líkur á alvarlegum háls og bakmeiðslum. Volvo var eini bílaframleiðandinn sem fékk öll sín sæti valin í besta flokkinn hjá Alþjóðlegu forvarnarsamtökum háls og bakmeiðsla í rannsókn á öruggustu sætunum 2005. Rannsóknin sýndi að WHIPS kerfið dregur 50% úr líkum á langvarandi háls og bakmeiðslum.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli