Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | mán. 12. feb. 2007

Volvo XC60 á markað á síðari hluta árs 2008

XC60 er meðal mest spennandi hugmyndabíla Volvo
XC60 er meðal mest spennandi hugmyndabíla Volvo

Volvo frumsýndi nýlega hugmyndabílinn XC60 í Evrópu og við það tækifæri lét Fredrik Arp, forstjóri Volvo Car, hafa það eftir sér að bíllinn yrði settur á markað á síðari hluta ársins 2008, þ.e. eftir um eitt og hálft ár. Samkvæmt frásögn sænska viðskiptablaðsins Dagens Industri vildi Arp ekki láta nein orð falla um getu bílsins en lagði þess í stað áherslu á að enn um sinn sé um hugmyndabíl að ræða. Hann gat þó staðfest að bíllinn mun heita XC60 og að hann verður sportjeppi í milliflokki. Að sögn Arps hefur fyrirtækið þegar fengið þó nokkurn fjölda fyrirspurna og því ljóst að þó nokkur eftirvænting ríkir eftir litla bróður hins vinsæla XC90.

Spennandi að fá litla bróður XC90

 „Volvo hefur sýnt marga frábæra hugmyndabíla í gegnum tíðina og XC60 meðal þeirra allra mest spennandi. Hann hefur fengið mjög góðar viðtökur og við hjá Brimborg erum mjög spennt fyrir því að fá til okkar þennan verðandi litla bróður hins geysivinsæla XC90,“ segir Ágúst Hallvarðsson, sölustjóri nýrra Volvo bifreiða hjá Brimborg.

Smelltu hér til að lesa meira um Volvo XC60.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli