Með þessari vél setur Volvo ný viðmið í flokki stórra jeppa með aflmiklar vélar.
Nýja V8 vélin er ekki nema 190 kg að þyngd. Með 60 gráðu horni er hún óvenju hagkvæm í stærð og þyngd. Það þýðir að hægt er að koma henni fyrir þversum og hefur þau áhrif að ekki þarf að endurhanna árekstrarsvæðið að framan.
Þetta er hreinasta V8 vélin á markaðnum í dag og uppfyllir kröfur ULEV ll í USA. Ný 6 gíra sjálfskipting kemur með þessari vél ásamt nýrri viðbót við AWD kerfið sem heitir - Instant Traction, og virkar þannig að bíllinn tekur samstundis á öllum fjórum hjólunum og á því ekki möguleika að spóla á tveimur hjólum.
Volvo XC90 V8 er aðeins 7.3 sekúndur frá 0-100 km hraða og eyðsla ekki nema 13.0 lítrar í blönduðum akstri. Vel af sér vikið fyrir 2.2 tonna þungan bíl.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan