Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | fös. 22. des. 2006

AutoCar verðlaunar BLIS frá Volvo

Hin háþróaða tækninýjung Volvo, BLIS (Blind Spot Information System), sem er fáanlegt með öllum gerðum Volvo bíla, hefur hlotið öryggis- og tækniverðlaun breska bílablaðsins AutoCar fyrir árið 2006. BLIS er fyrsta kerfi sinnar tegundar í heiminum og er hannað til að draga úr líkum á árekstrum sem orsakast af „blinda punktinum“ og margir ökumenn verða stundum óþyrmilega varir við.



Stafrænt myndavélakerfi

BLIS notast við skynvætt stafrænt myndavélakerfi sem er innfellt í báða hliðarspegla og vaktar stöðugt svæðið til hliðar við bílinn vegna annarrar umferðar og gefur kerfið ökumanni viðvörun með appelsínugulu viðvörunarljósi í A-póstinum þar sem spegillinn er.

BLIS er einfalt í notkun

Ritstjóri AutoCar, Charles Hallett, segir að BLIS kerfið frá Volvo sé einfaldasta, notendavænsta og hugmyndaríkasta öryggiskerfi sem framleitt hafi verið í áraraðir og vegna einfaldleikans muni ökumenn muni nýta sér kerfið.

Öryggismiðstöð Volvo í fararbroddi

Við móttöku verðlaunanna, sagði Ingrid Skogsmo, forstjóri Öryggismiðstöðvar Volvo, að fyrirtækið legði ekki síður áherslu á tækninýjungar í því skyni að koma í veg fyrir slys eins og að lágmarka meiðsli og tjón af völdum slysa. „Sem leiðandi fyrirtæki í öryggismálum bílgreinarinnar mun Volvo halda áfram að þróa nýja tækni í öryggismálum. Volvo kynnti BLIS kerfið fyrst í SCC hugmyndabílnum 2001 þannig að við erum mjög ánægð með að tæknin skuli nú þegar vera orðin að veruleika í bílum Volvo,“ sagði Ingrid.

Hjálpar en fríar ekki ábyrgð

Þar sem bílum í umferðinni fer stöðugt fjölgandi telur Volvo að upplýst skilaboð BLIS til ökumanns áður en skipt er um akgrein eða við framúrakstur á fjölakgreina vegi sé mjög mikilvægt öryggistæki til hjálpar ökumönnum. Þrátt fyrir aðstoð BLIS leysir kerfið ökumann að sjálfsögðu ekki undan skyldum sínum um að aka af athygli og ábyrgð.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli