Fyrst er að nefna BLIS (Blind Spot Information System. Þetta kerfi byggir á stafrænni myndavél sem fylgist stöðugt með ökutækjum beggja megin við bílinn. Þegar annað ökutæki nálgast, gefur viðvörunarljós nálægt útispegli til kynna mögulega hættu. Þetta kerfi er fáanlegt í flesta Volvo bíla frá miðju ári 2005.
Aðlögunarhæfur hraðastillir (Adaptive Cruise Control). Aðlögunarhæfur hraðastillir notar radarskynjara fremst á bílnum til að fylgjast stöðugt með fjarlægð í næsta bíl og lagar sjálfkrafa hraða bílsins til að viðhalda öruggri fjarlægð.
Varnarkerfi með hjálparafli á hemla. Mörg óhöpp við aftanákeyrslur gerast vegna þess að ökumaður verður fyrir truflun eða bregst ekki við tímanlega. Volvo hefur hannað kerfi sem mælir stöðugt veginn framundan og sjálfkrafa gerir ökumanni viðvart og grípur inní hemlun til að verjast árekstri.
Með innbyggðum radar fremst á bílnum gerir kerfið ökumanni viðvart ef nálgun við annað ökutæki gerist of snögglega. Ef kerfinu finnst ökumaður ekki hemla nógu fast kemur kerfið til hjálpar og eykur hemlunarþrýsting til að draga örugglega úr hraðanum.
Það sem meira er, ef ökumaður bregst alls ekki við aðstæðum, tekur kerfið við og hemlar sjálft. Jafnvel þó ekki sé mögulegt að koma í veg fyrir árekstur, dregur kerfið úr hraðanum áður en árekstur verður, sem minnkar líkur á alvarlegum meiðslum.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan