Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | fös. 15. des. 2006

Volvo XC60 er ögrandi sköpunarverk

 Volvo XC60 er ögrandi sköpunarverk
Volvo XC60 er ögrandi sköpunarverk

Nýjasti hugmyndabíllinn frá Volvo heitir XC60 og verður hann sýndur á bílasýningunni í Detroit á þrettándahelginni samkvæmt frétt á vef sænska viðskiptablaðsins Dagens Industri. Þar er bílnum lýst sem framtíð Volvo en hann er fyrsta afurð nýja yfirhönnuðarins Steve Mattin síðan hann kom til fyrirtækisins frá Mercedes fyrir um einu og hálfu ári síðan.

Segull fyrir augað

Í fréttatilkynningu frá Volvo er haft eftir Steve Mattin að á undanförnum árum hafi fyrirtækinu tekist mjög vel að leggja áherslu á hin skandinavísku einkenni sem finna má í virkni bílsins og að áfram verði byggt á þeim grunni. Jafnframt verði lögð áhersla á að gera bíla fyrirtækisins enn meira aðlaðandi fyrir augað.

„Með því að gera formin enn tjáningarfyllri og tilfinningalegri gerum við bílinn að segul fyrir augað. Ef þú segir að þú getir þekkt Volvo úr 50 metra fjarlægð í dag vil ég að í framtíðinni getir þú þekkt hann úr tvöfaldri þeirri fjarlægð,“ segir Mattin.

Sportjeppi

XC60 er sportjeppi af minni gerðinni og má í útlitinu greina vissan svip með SL og M-flokkunum frá Mercedes. Formið er enn þó enn dýnamískara og að sögn blaðamanns DI eins langt frá kassalaga formi Volvobíla 9. áratugarins, en þeir bílar hafa oft verið kallaðir jafnaðarmannagámar.

Sameinar sportjeppa og sportbíl

Frá sjónarhorni hönnunarinnar er hugmyndabíllinn XC60 ögrandi sköpunarverk, hlaðið tilfinningum en bíllinn hefur verið kryddaður með því besta frá tveimur dýnamískum bílgerðum. Að neðan hefur hann einkenni XC sportjeppana; kraftmikill og hátt undir bílnum en að ofan minnir hann helst á kynþokkafullan sportbíl.
Meðal þess sem er nýtt í útliti má nefna nýtt útlit afturhlera sem hefur verið þróað enn frekar út frá C30 og gegnsætt þak.

Keppir við BMW

Að innan hefur bílnum einnig verið breytt töluvert miðað við aðrar gerðir Volvo en hann hefur verið hannaður í náinni samvinnu við hönnuði Land Rover Freelander 2, en Land Rover er líkt og Volvo dótturfélag Ford. Volvo XC60 er ætlað að keppa við BMW X3, sem þegar er á markaði, og hina væntanlegu Audi Q5 og Mercedes GLK.


Sem heild þykir Volvo XC60 einstaklega smekklega hannaður og fallegur bíll og þeir sem þekkja Volvo vita að hvaða gæðum þeir ganga hvað varðar virkni bílsins. Ekki er ljóst hvenær bíllinn kemur á almennan markað en eflaust eru einhverjir þegar farnir að hlakka til þess. Það gerum við í Brimborg að minnsta kosti.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli