Nú er komið að því að frumsýna djásnið frá Volvo, hinn nýja Volvo C70. Þessi glæsilegi bíll er algert tækniundur því hann er búinn harðtoppi sem tekur fullkominn stjórnbúnað bílsins aðeins 29 sekúndur að fella niður að aftan og breyta úr Coupé í opinn sportara. Það er ljóst að þessi bíll á eftir að vekja mikla athygli á götunni.
Hinn nýi Volvo C70 er nánast sömu stærðar og forverinn. Hallandi framhlutinn gefur straumlínulagaðan og sportlegan hliðarsvip og segir Fedde Talsma, hönnunarstjóri hins nýja Volvo C70, að hönnun bílsins hafi verið afar krefjandi verk. Ástæðan var meðal annars sú að bílnum var ætlað að hafa sama yfirbragð hvort sem þakið væri uppi eða ekki. „Það var ekki auðvelt verk, en öll vinnan að því markmiði gaf okkur þá reynslu að besta aðferðin væri að hefja hönnunina á harðtoppnum sjálfum og vinna sig síðan niður eftir bílnum. Þegar við vorum orðin ánægð með útkomuna aðlöguðum við breytingarnar að opnu útgáfunni útfrá harðtoppsútgáfunni. Okkur finnst sem þetta fyrirkomulag hafi gefið besta raun.“
Hönnun nýja bílsins er árangur af samstarfi við hinn þekkta ítalska hönnuð Pininfarina, sem hefur langa reynslu af hönnun og samsetningu opinna bíla. Nýi Volvo C70 bíllinn er einn af fyrstu opnu bílunum í lúxusflokki með bæði stálþaki og sætum fyrir fjóra farþega og eins og forverinn er hann samsettur í Uddevalla í Svíþjóð.
Sala bílsins hefur frá upphafi gengið afar vel að sögn talsmanna Volvo og því ríkir mikil eftirvænting hjá Volvo vegna viðbragða markaðarins við þeim nýja sem er enn glæsilegri en fyrirrennarinn. „Fyrsta kynslóð C70 með opnum toppi átti sitt besta söluár 2004 þegar seld voru rúmlega átta þúsund eintök. Við trúum því að eiginleikar bílsins séu mjög eftirsóttir og því gerum við ráð fyrir meira en helmings söluaukningu samanborið við fyrstu kynslóð C70,“ segir Hans-Olov Olsson, forstjóri Volvo. Nýjugar við hönnunHinn nýi Volvo C70 var hannaður út frá nýjum öryggisstöðlum fyrir opna bíla. Hann er byggður á mjög sterkri grind og búinn nokkrum áður óþekktum lausnum við hönnun opinna bíla. Til dæmis var aftengingu þaksins við yfirbyggingu bílsins mætt með sérstyrkingu og þróaðri tækni.
Annað dæmi eru IC loftpúðatjöldin (Inflatable Curtains), sem nú hafa verið staðsett í hurðum bílsins, en ekki í toppnum eins og í öðrum Volvo bílum. Þetta er nýjung sem ekki er í öðrum bílum. Öryggishönnuðir Volvo hafa ennfremur útbúið loftpúðana sérstaklega stífa. Niðurstaðan er sú að þeir haldast lengur uppi og verja höfuð farþega betur. Auk þess rennur loftið í púðunum hægar úr þeim en tíðkast í öðrum bílum þannig að verja megi farþega betur en áður velti bíllinn í kjölfar árekstrar. Hér er einnig um nýjung að ræða.
Hönnun yfirbyggingar hins nýja C70 leiðir af sér aukið öryggi í akstri því hún felur í sér mun stífari samsetningu undirvagns og yfirbyggingar en áður, eða allt að tvisvar sinnum meiri en í fyrstu kynslóð C70. „Að auki má nefna að þegar harðtoppur bílsins er uppi eykst styrkur yfirbyggingarinnar um 10 til 15% til viðbótar,“ segir framleiðslustjóri C70, Patrik Widerstran, og bætir við að stíf yfirbygging bílsins sé mikilvæg fyrir aksturseiginleika hans því hún auki stöðugleika bílsins og geri hann mun auðveldari í allri stjórn. „Öll akstursánægja verður því mun sportlegri og skemmtilegri.“
Vélalínan samanstendur af fimm strokka línuvélum. Þar fer fremst í flokki 220 hestafla T5 forþjöppuvélin, en einnig eru tvær 2,4 lítra vélar í boði, annars vegar 170 hestafla og hins vegar 140 hestafla vél og síðar á árinu mun svo verða boðið upp á 2,4 lítra fimm strokka og 180 hestafla díselvél.
Hin nýi Volvo C70 verður frumsýndur á laugardaginn kemur, 13. maí, hjá Brimborg við Bíldshöfða 6 í Reykjavík. Opið verður milli kl. 12 og 16 og verður gestum boðið upp á kaffi og kleinur.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan