Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

22. febrúar 2012
Volvo | fim. 12. jan. 2012

Veldu öryggi og skoðaðu Volvo XC í Brimborg á laugardaginn

XC-línan frá Volvo

Sameinar tvo heima
Á laugardaginn 14. janúar verður stórsýning á Volvo XC opnuð í Brimborg. Volvo XC eru ekki bara liprir í borgarakstri heldur eru þeir bæði áreiðanlegir og öruggir við aðstæður utan borgarmarkanna. Volvo XC sameinar tvo heima; veröld náttúrunnar og klið borgarinnar.

Með Volvo XC eru komin fram á sjónarsviðið ökutæki sem hönnuð eru fyrir þær erfiðu aðstæður sem íbúar hinna norðlægu breiddargráða þekkja svo vel af eigin raun. Þú sníður þinn Volvo XC að þínum þörfum.


Ríkulega útbúnir tækninýjungum
Meðal eiginleika Volvo XC60 AWD eru SIPS hliðarárekstrarvörn, WHIPS bakhnykksvörn og spólvörn með stöðugleikastýringu (DSTC). Auk þess er loftkæling hitastýrð og bíllinn útbúinn lofthreinsikerfi (AQS). Einnig er XC60 með nálægðarskynjara að aftan, hraðastilli og Bluetooth GSM símkerfi. Að auki er Volvo XC60 með Borgaröryggi (City Safety) sem staðalbúnað.

Volvo XC60 D5 AWD er 215 hestöfl með 6 þrepa sjálfskiptingu og kostar frá 8.890.000 kr. Eldsneytisnotkun hans í langkeyrslu er 5,6 l/100 km og útblástur koltvísýrings er 179 g/km. 

Meðal eiginleika Volvo XC70 AWD má nefna AWD-fjórhjóladrif sem er með skynjara sem skynja ástand vegar og bregðast við því ef eitt hjól tapar gripi með því að hin taka við. Spólvörnin er hluti af DSTC-kerfi bílsins og kemur þér upp úr snjó og hálku, DSTC-stöðugleikakerfið spornar gegn því að bíllinn skriki til og öll klæði innandyra hafa verið ofnæmisprófuð og uppfylla því hinn eftirsótta Öko-Tex staðal. Að auki er Volvo XC70 með Borgaröryggi (City Safety) sem staðalbúnað.

Volvo XC70 D5 AWD er 215 hestöfl og með 6 þrepa sjálfskiptingu og kostar frá 9.090.000 kr. Eldsneytisnotkun hans í langkeyrslu er 5,7 l/100 km og útblástur koltvísýrings er 179 g/km.

Meðal eiginleika Volvo XC90 AWD má nefna rafeindastýrt fjórhjóladrifskerfi frá Haldex, ABS hemlakerfi með EBD hemlajöfnun, ECC tölvustýrða loftkælingu með hitastýringu, spólvörn með stöðugleikastýringu og veltivörn (Roll Stability Control) DSTC+RSC.

Þá er Volvo XC90 rúmbesti Volvo bíllinn, með sætum fyrir sjö manns og rúmgott farangursrými sem hægt er að stækka með því að leggja tvö öftustu sætin flöt niður í gólfin. Volvo XC90 er því sannkallaður stórfjölskyldubíll.

Volvo XC90 D5 AWD er 200 hestöfl og með 6 þrepa sjálfskiptingu og kostar frá 10.990.000 kr. Eldsneytisnotkun hans í langkeyrslu er 6,8 l/100km og útblástur koltvísýrings 219 g/km.

Komdu við á Bíldshöfða 6 á laugardaginn milli 12 og 16 og kynntu þér málið. Lifðu í öryggi. Lifðu í lúxus. Veldu Volvo. Komdu í Brimborg.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli