Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

22. febrúar 2012
Volvo | fös. 6. jan. 2012

Nýjasta áætlun Volvo um minnkun útblásturs kynnt

Volvo S80 DRIVe.

Nýjasta áætlun Volvo um að draga úr útblæstri á koltvísýringi var kynnt á dögunum og hefur hún hlotið yfirskriftina "DRIVe Towards Zero". „Í fyrsta skipti er eldsneytisnotkun sjálfskiptu bílanna sú sama og þeirra beinskiptu. Þetta er stórkostlegt afrek þeirra tæknimanna sem sérhæfðir eru í aflrásakerfi bíla,“ segir Peter Mertens, forstjóri rannsókna- og þróunarsviðs Volvo. Afrek tæknimannanna eru meðal annars fólgin í því að núningur milli íhluta í gírkassa er minni, hugbúnaður vélar og gírkassa hefur verið uppfærður og rafkerfið endurbætt m.t.t. orkusparnaðar sem hefur í för með sér að tekist hefur að draga úr eldsneytisnotkun og minnka útblástur koltvísýrings.

Volvo er leiðandi meðal evrópskra bílaframleiðenda í minnkun útblásturs á koltvísýringi eins og fram kemur í skýrslu Evrópsku samtakanna um samgöngur og umhverfi og dróst heildarlosun saman um heil 9% árið 2010, ekki síst fyrir tilstuðlan „DRIVe Towards Zero“ verkefnisins og þeirri miklu áherslu sem lögð var á umhverfismál í því. „Við munum halda áfram að gera allt sem við getum til að standa skrefi framar en keppinautarnir með að framleiða sparneytna bíla og halda útblæstri í skefjum,“ segir Peter Mertens að lokum.

 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli