Volvo hlaut að þessu sinni hámarkseinkunn fyrir allar bíltegundir sínar sem prófaðar voru. Liggur árangur Volvo á þessu sviði meðal annars í afburðagóðum sætum með miklum hliðarstuðningi og áföstum hnakkapúðum, sem tryggja að staða þeirra veiti ávallt besta mögulegan stuðning, ásamt Volvo bakhnykksvörninni WHIPS (Whiplash Protection System) sem færir allan bakhluta sætisins til, sem dregur úr álagi á háls og bak við aftanákeyrslu. Einkunnagjöf Thatcham prófaði sæti hundrað áttatíu og tveggja nýrra bíla og gaf þeim einkunn í þremur flokkum: Fyrir þægindi, styrk og síðan heildareinkunn.
Einkunnin „G” er hámarkseinkunn vegna góðrar varnar, einkunnina „A” fengu þau sæti sem þóttu veita viðunandi vörn, sæti með einkunnina „M” veita vörn, sem þykir á vörkunum að vera viðunandi, og sæti með einkunina „P” veita lélega vörn að mati Thatcham. Þeir bílaframleiðendur sem neita að útvega sæti til þátttöku í þessum mikilvægu prófum fá einkunnina „R”.
Niðurstaða prófunar Thatcham var sú að öll sætin frá Volvo. sem prófuð voru, hlutu hámarkseinkunnina “G” í öllum þremur flokkunum. Til samanburðar má geta þess að heildareinkunn Audi var “A” og “M” hjá Lexus. Sömuleiðis fengu sæti í fjórum tegundum BMW ( 3-línunni, X3, X5 og standard sætin í 5-línunni) einkunnina “P” í heildareinkunn.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan