19. maí 2012
Volvo
|
mán. 31. jan. 2011
Enn ein nýjungin frá Volvo - Volvo V60 tengiltvinnbíll
Hægt verður að aka Volvo V60 tengitvinnbílnum allt að 50 km aðeins á rafmagni
Í nýjum Volvo V60 tengiltvinnbíl kristallast bestu eiginleikar mismunandi bílategunda í einum og sama sportlega skutbílnum. Þar á meðal er möguleikinn á að aka allt að 50km eingöngu á rafmagni. Þar sem Volvo V60 tengiltvinnbíllinn notar aðeins 1,9 lítra af eldsneyti á hverja 100 km og losar aðeins 50g/km af koldíoxíði er um einstaklega hagkvæman og visthæfan bíl að ræða.
„Þessi annarrar kynslóðar tvinnbíll er hinn fullkomni kostur fyrir kaupandann sem er ekki tilbúinn til að slá af kröfum sínum um bíl sem losar lítið koldíoxíð og er jafnframt gæddur afbragðsaksturseiginleikum,“ segir Steven Jacoby, forstjóri Volvo Cars.
D5 vél og rafmagnsdrif á afturöxli
Framhjólin á V60 tengiltvinnbílnum verða knúin af fimm strokka 2.4 lítra D5 túrbódísilvél, sem er 215 hestöfl og skilar 440 Nm í togi. Afturöxullinn er með ERAD rafknúnu drifi (Electric Rear Axle Drive), en það er knúið af 70 hestafla rafmótor sem fær aflið úr 12 kílóvatta lithium rafhlöðu. Þá er bíllinn með 6 gíra sjálfskiptingu.
„Til að fá bílaáhugamenn til að hugsa á vistvænan hátt, þá verður að gefa þeim möguleikann á minni losun skaðlegra lofttegunda án þess að glata spennunni sem skapast við sanna akstursánægju. V60 tengiltvinnbíllinn er búinn öllum þeim sömu eiginleikum og hefðbundinn sportlegur skutbíll. Það sem við höfum gert er að krydda hann með nýrri forystutækni,“ segir Steven Jacoby.
Volvo V60 tengiltvinnbíllinn verður frumsýndur á blaðamannafundi á
bílasýningunni í Genf þann 1. mars næstkomandi.