Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

06. febrúar 2012
Volvo | þri. 3. ágú. 2010

Geely gengur frá kaupum á Volvo

Ford hefur selt Volvo til Geely.
Nýfrágengin kaup Geely á Volvo eru stærstu kaup kínversks bílaframleiðanda á vestrænu fyrirtæki í þessum geira og er talið að kaupin muni hafa mikil áhrif á alla hlutaðeigandi. Ekki aðeins mun Volvo njóta aukins fjár til rannsókna og þróunar, heldur mun Ford áfram njóta góðs af þeirri gríðarlegu þekkingu sem Volvo býr yfir á sviði bílaöryggis, þar á meðal fullkominni prófunarstöð Volvo. Einna athyglisverðast er að Volvo mun njóta mikillar innspýtingar fjármagns á næstunni enda munu Kínverjar verja talsverðu fé til rannsókna sem mun nýtast í þróunarstarf á næstu árum og má reikna með að það fé muni einnig nýtast Geely við þróun á eigin bílum.

Vinsældir Geely hafa verið miklar í Kína og hefur bílaframleiðandanum fyrir nokkru tekist það ætlunarverk sitt, að bjóða upp á einskonar kínverska útgáfu af alþýðubíl. Velgengni á Vesturlöndum hefur hinsvegar látið á sér standa enda sá markaður sá kröfuharðasti í heimi. Geely sér fyrir sér að kaupin á Volvo muni hinsvegar leysa vanda Geely hvað Vesturlönd varðar og í stað þess að þróa nýja bíla fyrir Vesturlönd þá muni Geely fremur kaupa þekkt lúxusmerki, sem svo verður hægt að selja á hinum ört vaxandi kínverska markaði.

Taka við Volvo á besta mögulega tíma

Fyrsti Volvo bíllinn var smíðaður árið 1927 og var strax í upphafi ljóst að sérstaða Volvo yrði á sviði öryggis. Árið 1999 keypti Ford Volvo og varð Volvo um leið hluti af Premier Automotive Group Ford eða PAG eins og það var oftast kallað en það var samsteypa lúxusmerkja í eigu Ford. Undir þeim hatti voru Lincoln, Aston Martin, Jaguar, Mercury, Land Rover og Volvo.

Tilvist Volvo í PAG var afar mikilvæg hinum merkjunum í samsteypunni þar sem með Volvo var hægt að bjóða framúrskarandi öryggisþekkingu Volvo mun fleirum. Undir stjórn núverandi forstjóra Ford, Alan Mulally, var hinsvegar sú stefna tekin að selja lúxusmerkin í PAG samsteypunni enda þurfti Ford eins og margir aðrir bílaframleiðendur að glíma við flókna endurskipulagningu eftir því sem bílasala dróst saman vegna yfirvofandi efnahagskreppu. Þetta var árið 2006 og fyrsti bílaframleiðandinn sem var seldur af Ford var Aston Martin ári síðar. Mars 2008 voru svo Land Rover og Jaguar seld indverska framleiðandanum Tata Motors og loks var tilkynnt í mars síðastliðinn að Volvo yrði selt til kínverska framleiðandans Geely.

Ljóst er að Geely tekur við Volvo á besta mögulega tíma. Volvo hefur verið á góðri siglingu undanfarna mánuði og hefur salan aukist á mörgum markaðssvæðum Volvo í Evrópu. Salan í maí jókst um 18,6% samanborið við árið á undan en á sama tíma dróst bílasala í Evrópu saman um 8,7%. Fyrstu fimm mánuði þessa árs hefur sala Volvo aukist um 23,5% á meðan bílasalan hefur á heildina aukist um aðeins 2,3% frá fyrra ári.

Þetta má að miklu leiti þakka áherslubreytingu hjá Volvo en bílar Volvo eru í dag ekki aðeins öruggir heldur líka afar spennandi sem akstursbílar og sýna sölutölurnar að ný nálgun Volvo á því hvað viðskiptavinir sínir vilja er hárrétt. Nýr Volvo XC60 var fyrsti bíllinn af þessari nýju kynslóð Volvo bíla þar sem mikil áhersla er lögð á aksturseiginleika. Þó má ekki gleyma því að öryggið er alltaf megin einkenni Volvo. Þá var algjörlega nýr Volvo S60 nýlega kynntur til sögunnar og eru aðeins fáeinir dagar síðan fyrstu Volvo S60 bílarnir komu til Íslands. Volvo S60 hefur á meginlandinu verið auglýstur sem spennandi akstursbíll og hafa viðtökurnar verið afar góðar. Bílablaðamenn hafa hlaðið bílinn lofi og sagt hann jafnast á við, eða jafnvel vera fremri því besta sem þýsku bílaframleiðendurnir bjóða upp á í sama stærðarflokki.

Vel heppnuð kaup Kínverja

Kínverjar hafa þegar notið talsverðar velgengni í því að kaupa þekkt vestræn fyrirtæki. Vel heppnuð kaup fram að þessu hafa til dæmis verið kaup Lenovo á IBM Thinkpad sem þóttu takast einstaklega vel. Það er því ljóst að Kínverjar hafa tæknilega þekkingu og nóg fé til þróunarvinnu til að þess að styrkja stöðu þeirra fyrirtækja sem keypt eru verulega.

Í ljósi þessa reiknar starfsfólk Volvo um allan heim með því að Volvo muni innan tíðar hefja mikla sókn á lúxusbílamarkaði með öryggi og akstursánægju sem sín aðalsmerki.

Hvað Ísland varðar hefur staða Volvo um áratuga skeið verið afar sterk. Eftir bankahrunið er staða Volvo ennþá mjög sterk en Volvo er í dag mest selda lúxusbílamerkið á Íslandi. Vonandi er það merki um heilbrigðari kauphegðun Íslendinga eftir efnahagshrunið því þó Volvo sé lúxusbílamerki er um afar skynsamlega hannaða bíla að ræða á góðu verði. Frá 1. janúar 2010 til 28. Júlí 2010 voru nýskráningar Volvo bíla 26 talsins sem gerir Volvo að mest selda lúxusbílamerkinu á Íslandi.

Fyrir Brimborg eru fréttirnar af sölu Volvo ánægjulegar. Forvitnilegt verður að sjá hvernig kínverska bílaframleiðandanum Geely reiðir af á næstu misserum en reikna má fastlega með því að Geely muni ná viðlíka árangri í endurhönnun vörulínunnar á næstu árum og þekktir bílaframleiðendur frá Kóreu hafa þegar náð. Tækifærin fyrir Brimborg vegna kaupa Geely á Volvo og áframhaldandi samstarfi Volvo og Ford eru því mikil.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli