Volvo Cars í Bretlandi vill hvetja fólk til að líta á heildarmynd losunar skaðlegra lofttegunda og agna þar sem tölur yfir losun koldíoxíðs segi ekki alla söguna. Framvegis mun bílkaupendum standa til boða að kynna sér heildartölur áður en þeir kaupa bíl.
Þegar eru á skrá hjá yfirvöldum upplýsingar yfir alla selda bíla í Bretlandi síðan árið 2001. Þá hyggst Volvo einnig bjóða upp á tækni sem gerir almenningi kleift að nálgast þessar upplýsingar á einfaldan hátt, hvort sem er í gegnum síma eða tölvu.
Kerfið byggir á samskonar kerfi sem notað hefur verið í Bandaríkjunum. Það gefur einkunn á skalanum 1-10 fyrir bæði útblástur sem veldur gróðurhúsaáhrifum, og útblástur sem veldur staðbundinni loftmengun.
Volvo heldur því fram að það sé verulegur munur á losun skaðlegra lofttegunda og agna fyrir utan koldíoxíð í bílum seldum í Bretlandi. Nefnd er sem dæmi 2.5 lítra bensínvél í Volvo V70 sem losar 201 g/km af skaðlegum efnum fyrir utan koldíoxíð samanborið við 484 g/km sem 1.4 lítra vél í Fiat 500 með start/stop tækni gefur frá sér.
Herferð Volvo er viðbragð framleiðandans við hótun Evrópusambandsins að koma á sektum, allt að 300 pundum á bíl, í Bretlandi vegna slakra loftgæða þar í landi.
Í frétt á vef Autocar segir prófessor við Kings College í London að rekja megi dauða 4300 manns á ári hverju í borginni, og um 50.000 í Bretlandi öllu, til loftmengunar, og að um 70% hennar séu vegna bílaumferðar.
Segir hann lungu barna sem búi í miðborginni sérstaklega viðkvæm fyrir smáagnamengun sem megi nánast alfarið rekja til dísilbifreiða, sem teljast yfirleitt til minna mengandi bíla.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan