Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

06. febrúar 2012
Volvo | þri. 27. júl. 2010

Nýr Volvo S60 er kominn í hús hjá Brimborg!

Nýr Volvo S60 er kominn í Brimborg.

Fáir bílaframleiðendur hafa lagt jafnmikla vinnu í hönnun á bíl og Volvo hefur gert með S60 bílinn. Volvo S60 er búinn fullkomnustu tækni sem völ er á. Borgaröryggi (City Safety) árekstrarvarinn er staðalbúnaður en þar að auki er sýningarbíllinn búinn ACC öryggiskerfinu sem inniheldur í raun þrjú öryggiskerfi.

1. Vegfarendaskynjari (Pedestrian Detection) sem skynjar ef gangandi vegfarandi er í aksturslínu bílsins og bregst við með því að hemla ef ökumaður verður hans ekki var.

2. Árekstrarvari þar sem kerfið gefur hljóð og ljósmerki í framrúðu ef ökumaður bregst ekki við hindrum framundan og nauðhemlar síðan ef engin viðbrögð verða frá ökumanni.

3. Aðlögunarhæfur hraðastillir þar sem hægt er að stilla fjarlægð í næsta bíl á undan og viðheldur þeirri fjarlægð þó bíllinn á undan hægi á sér.

Glæsilegur staðalbúnaður

Volvo S60 fylgir óvenju glæsilegur staðalbúnaður. Hann er með gríðarlega öflugum hljómtækjum, 5 tommu litaskjá í mælaborði, 17 tommu álfelgum, Bluetooth GSM símkerfi, nálægðarskynjara að aftan, sportstýri og sportmælaborði, auk Borgaröryggis eins og nefnt var að framan.

Volvo S60 býr yfir þróaðri stöðugleikastýringu sem leyfir sportlegri akstur og sérstakri beygjuspólvörn sem gerir bílnum kleift að taka beygjur hraðar, með meiri mýkt og öruggar en áður.

Innandyra má helst lýsa nýja Volvo S60 sem fáguðum á hógværan hátt. Efni, stjórntæki og sæti segja þeim sem sest inn í bílinn að hér hafi ekkert verið slegið af kröfum um gæði og glæsileika.

Kraftmesta vél í Volvo til þessa

Vélalína Volvo S60 er glæsileg eins og við var að búast. Átta vélar, frá 115-304 hestöfl verða í boði, en þó ekki allar hér á landi. Vélin í sýningarbílnum okkar er 2.0D D3 túrbó 163 hestafla dísilvél.

Fjórar vélar eru í boði til að byrja með. Tvær bensínvélar og tvær dísilvélar. Aflmesta vélin í línunni er 3.0 T6 túrbó bensínvélin, 304 hestöfl með AWD fjórhjóladrifi. Aðrar vélar í boði eru 2.0T GTDI Turbo 203 hestafla bensínvél, 2.0D D3 Turbo 163 hestafla dísilvél og 2.4D D5 Turbo 205 hestafla dísilvél með AWD fjórhjóladrifi.

Þeir sem aka nýjum S60 munu kynnast áður óþekktu öryggi sem tryggir frelsi þeirra, því hvað annað er öryggi en frelsi frá óöryggi. Lifðu í öryggi – veldu frelsi – veldu Volvo S60.



Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli