Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

06. febrúar 2012
Volvo | mið. 21. júl. 2010

Þriggja punkta öryggisbelti Volvo er komið á Smithsonian safnið

Hér má sjá mynd af beltinu og sætinu úr 1961 árgerð af Volvo PV 544 sem nú standa á Smithsonian safninu í Bandaríkjunum

Þriggja punkta öryggisbelti Volvo markaði tímamót í umferðaröryggi þegar það var kynnt til sögunnar fyrir rúmum fimmtíu árum og voru aðrir bílaframleiðendur fljótir að taka nýjungina upp.

Það var Volvo verkfræðingurinn Nils Bohlin sem hannaði beltið árið 1958 og fékk einkaleyfi fyrir því ári síðar. Beltið er nú staðalbúnaður í nánast öllum bílum sem framleiddir eru.

Áður en haldið var upp á fimmtíu ára afmæli beltisins í fyrra var ferlið hafið sem á endanum gerði það að sýningargrip á hinu virta Smithsonian þjóðminjasafni í Washington í Bandaríkjunum. Safnið sækja um fjórar milljónir manna árlega og til gaman má geta að kvikmyndin Night at the Museum 2 með Ben stiller í aðalhlutverki gerist einmitt þar.

Sannreyna þarf uppruna hvers einasta hlutar sem stillt er fram á Smithsonian og það var strangt og langt ferli að ganga úr skugga um að beltið væri upprunalegt Volvo belti. Það er úr 1961 árgerð af Volvo PV 544 og er sýnt með upprunalegu bílsæti úr samskonar bíl.

Uppruninn var sannreyndur með því að rekja eigendasögu bílsins allt til verksmiðjunnar, sem vottaði að bíllinn hefði verið framleiddur með samskonar belti. Þessi nákvæmni sýnir hversu mikill heiður það er að verða hluti af sýningum safnsins.

Jafnvel eftir 50 ár stöðugra nýjunga á sviði öryggismála, er þriggja punkta öryggisbeltið enn árangursríkasta vörnin fyrir farþega við árekstur. Beltið helmingar líkurnar á mannslátum eða alvarlegum áverkum við árekstur.

Hönnunin er einföld og áhrifarík og heldur líkama farþegans vel skorðuðum í sætinu, en það er einmitt það sem gerir svo áhrifaríkt.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli