Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

06. febrúar 2012
Volvo | fös. 16. júl. 2010

Líka hægt að sérpanta aukahluti fyrir notaða Volvo

Nokkrir vel valdir aukahlutir geta gert fallega bíla enn glæsilegri.
Það er alvanalegt að viðskiptavinir Volvo taki miklu ástfóstri við bíla sína enda um afar vandaða og skemmtilega bíla að ræða. Hjá sumum er ekki á dagskrá að skipta í nýrri bíl alveg strax en það þýðir ekki að viðkomandi verði að aka um á nákvæmlega sama bílnum þangað til að verðugur arftaki finnst. Erling Þorgrímsson Volvo eigandi hefur leyst þetta vandamál með aðstoð söluráðgjafa Brimborgar.

Erling á 2005 árgerðina af Volvo S60 sem lengi hefur þótt einn best heppnaði bíll Volvo, einstaklega stæðilegur og sterklegur að sjá, nánast eins og hann hafi verið hogginn til úr heilli blokk af grágrýti. Erling hafði þó í huga að uppfæra bílinn sinn eins og kostur var og fór því til Brimborgar til að ráðfæra sig um hvað væri mögulegt að gera fyrir notaða Volvo bíla.

Það var sérstaklega útlit bílsins sem Erling vildi sníða að sínum óskum. Þetta er auðveldlega gert þegar nýir bílar eru pantaðir enda eru Volvo bílar iðulega sérpantaðir og klæðskerasniðnir að þörfum hvers viðskiptavinar. Þetta er þó einnig hægt að gera með notaða Volvo bíla, upp að vissu marki.

Öflugri hljómtæki og fersk smáatriði

Erling skoðaði möguleikana á breytingum bæði utan á bílnum og að innan. Þá var sérstaklega skoðað að uppfæra hljóðkerfið í mun öflugra kerfi en slík aðgerð er að jafnaði nokkuð kostnaðarsöm en verðlaunin eru þó ríkuleg.

Það er skemmst frá því að segja að Ragnar Þór söluráðgjafi Brimborgar vann með Erling að því að setja saman góðan pakka fyrir bílinn eftir hugmyndum Erlings sem umbylti bílnum svo rækilega að hann lítur nú út fyrir að vera mun yngri og dýrari gerð.

Í bílinn fóru vindskeið undir framstuðara, vindskeið á skottlok, nýtt Volvo merki á skottlok, nýir og sérlega glæsilegir mælar í mælaborð, nýir rofar í stýri og stýrisstilkar, nýjar túður í miðstöðvarkerfið og nýtt grill.

Á tæknilegu hliðinni voru hljómtæki bílsins uppfærð. Keyptur var öflugri magnari, 300W í stað 200W magnara sem var fyrir í bílnum og 100W hátalarar í stað 75W hátalaranna. Þá var einnig sett tengi fyrir tónhlöðu í bílinn sem er sérstaklega hannað fyrir Volvo en það var sett í bílinn hjá Brimborg.

Einnig voru settar filmur í afturrúður og nú er verið að bíða eftir punktinum yfir i-ið, nýjum álfelgum sem nú þegar eru í pöntum hjá Brimborg.

Við óskum Erlingi til hamingju með vel heppnaðar breytingar á glæsilegum Volvo S60 bílnum.

Fleiri myndir af bílnum má sjá á Cardomain.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli