Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

06. febrúar 2012
Volvo | fim. 8. júl. 2010

Nýi Volvo V60 er skutbíll þeirra kröfuhörðu

Sportlegur og fjölhæfur - nýi Volvo V60
Nýi Volvo V60 verður frumsýndur á bílasýningunni í París í lok september og kemur á Evrópumarkað í lok ársins. Búist er við að um 90% af þeim fimmtíu þúsund bílum sem framleiddir verða árlega fari á Evrópumarkað.

V60 er gert að höfða til kaupandans sem myndi heillast af S60 bílnum, en vill betra rými og meiri sveigjanleika án þess að fórna sportlegu útlitinu og einstökum aksturseiginleikum.

Samkeppnin er mikil í þessum flokki bíla og viðskiptavinirnir eru kröfuharðir og vita nákvæmlega hverju þeir eru að leita að. Þess vegna hefur verið lögð sérstök áhersla á gæði í efnum og útliti og bíllinn hefur verið hlaðinn nýjustu öryggistækni og þægindum. Niðurstaðan er einstakur skutbíll með sportlegt viðmót.

Til verndar gangandi vegfarendum

Nýi Volvo V60 er að sjálfsögðu búinn allri nýjustu öryggistækni. Helstu nýjungarnar á því sviði er tækni sem ætlað er að koma í veg fyrir að slysin gerist, eins og City Safety árekstravarinn, og sú nýjasta er til verndar gangandi vegfarendum.

Pedestrian Detection varar bílstjórann við ef gangandi vegfarendur koma í aksturslínu, og hemlar sjálfkrafa ef bílstjórinn bregst ekki við.

Volvo V60 verður framleiddur í verksmiðju Volvo í Torslanda í Svíþjóð. Gert er ráð fyrir að framleiða 50 þúsund bíla á ári og þeir fyrstu verða afhentir kaupendum seint á þessu ári.

Fjölgar í hópi Volvo aðdáenda

Bílkaupendum má gróflega skipta í tvo hópa: Bílaáhugamenn og þá sem hugsa út frá gagnseminni. Hjá áhugamönnum er bíllinn vinsælt umræðuefni sem aldrei þrýtur, á meðan gagnsemishyggjumaðurinn hugsar aðeins um bíla á 3-4 ára fresti, þegar þarf að endurnýja.

Volvo eigendur hafa í gegnum tíðina frekar verið í gagnsemishyggjuhópnum, en það hefur breyst með nýjum kynslóðum Volvo bíla og nýi V60 bíllinn er hlaðinn atriðum sem alvöru bílaáhugamenn líta til þegar velja á bíl.

Talan 60 stendur fyrir sportlegustu módelin. XC60 bíllinn var fyrsta skrefið, næsta skref var tekið með nýja S60 fólksbílnum og nú bætist V60 skutbíllinn í hópinn.

Átta glæsilegar vélar í boði

Vélakosturinn er ekki af lakari endanum. Það eru átta vélar í boði, fimm bensínvélar og þrjár dísilvélar.

Þar verður eitthvað fyrir alla, allt frá 115 hestafla vistvænni DRIVe útgáfu til 304 hestafla túrbóvélar. Hér á landi verða fjórar vélar í boði, tvær bensínvélar og tvær dísilvélar.

Allar vélarnar hafa verið hannaðar með það í huga að mæta hörðustu kröfum um sportlegan, kraftmikinn akstur sameinaðan samkeppnishæfri eldsneytisnotkun.

Sportleg útlitshönnun Volvo V60 var ekki aðeins innblástur fyrir hönnuði undirvagnsins heldur gefa djarfar línurnar líka viðskiptavinunum sjónrænt loforð um að akstursupplifunin verði einstök.

„Við vitum að kaupendur í þessum flokki bifreiða eru afar kröfuharðir þegar kemur að aksturseiginleikum. Ég er sannfærður um að þeir verði mjög ánægðir með þá vinnu sem lögð hefur verið í undirvagninn og vélarnar,“ segir Thomas Ahlborg, verkefnisstjóri nýja Volvo V60.

Brimborg hefur þegar pantað V60 sýningarbíl sem væntanlegur er til landsins í haust. Þangað til er hægt slá á spennuna með margvíslegu efni á Netinu og eins og sjá má af þessu myndbandi á YouTube, þá er full ástæða til tilhlökkunar.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli