Volvo C70, sem fyrst var kynntur til sögunnar á bílasýningunni í Frankfurt í september síðastliðnum, er virkilega spennandi græja; fjögurra sæta blæjubíll með miklum staðalbúnaði. Fyrstu bílarnir hafa þegar verið pantaðir og eru væntanlegir til landsins í mars 2006.
Viðbrögð gesta á bílasýningunni voru afar jákvæð, hinn nýi C70 naut mikillar athygli og söluaðilar um allan heim hafa einnig orðið varir mikillar eftirvæntingar með hinn nýja grip.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan