19. maí 2012
Volvo
|
mið. 12. maí 2010
Sá öruggasti og flottasti, Volvo XC60, til á lager!
Volvo XC60 er núna til á lager hjá Brimborg og verður hægt að reynsluaka bílnum hjá Brimborg næstu vikurnar.
Volvo XC60 er einn nýjasti bíll
Volvo fjölskyldunnar og hefur hann fengið afar góðar móttökur erlendis sem hérlendis. Í dómum hefur öryggi bílsins verið hampað eins og títt er með Volvo bíla en einnig hefur verið sérstaklega haft orð á því hve sportlegur hinn nýi XC60 er. Sportlegir eiginleikar munu verða meira áberandi í Volvo bílum framtíðarinnar, nú þegar Volvo hefur tryggt sér öruggt forskot á sviði öryggis.
Bílar til afgreiðslu strax
Viðskiptavinir Brimborgar undanfarið sérpantað alla VolvoXC60 bíla og notið sérpöntunarafsláttar Volvo. Nú eru hinsvegar fyrstu bílarnir komnir á lager og af því tilefni verður hægt að skoða bílana í Volvo sal Brimborgar að Bíldshöfða 6 og einnig er hægt að bóka reynsluakstur.
Fyrsti bíllinn er sem áður segir þegar kominn og er þar um að ræða 205 hestafla
dísilbíl sem nýtur góðs af endurforritun verkfræðinga Volvo en það þýðir að dísilbíllinn er 20 hestöflum og 20 Nm öflugri en fyrsta útgáfan sem kom í fyrra og sparneytnari í þokkabót.
Volvo XC60 skartar gríðarlega miklum staðalbúnaði eins og ABS, EBD hemlajöfnun, sex loftpúðum með loftpúðatjöldum í hliðargluggum, SIPS hliðarárekstrarvörninni þekktu, WHIPS bakhnykksvörn, spólvörn, hleðslujafnara, brekkubremsu og hinum stórsniðuga Borgaröryggisbúnaði (
City Safety) sem dregur úr líkum á aftanákeyrslu.
Vél bílsins er sem áður segir afar öflug en hagkvæm. Hún skilar 205 hestöflum og 420 Nm með hjálp samrásarinnsprautunar og tveggja túrbína. Einn bensínbíll og annar dísilbíll munu fylgja í kjölfar dísilbílsins og munu þeir koma á næstu dögum.
Bensínbíllinn er með öfluga þriggja lítra vél sem skilar hvorki meira né minna en 285 hestöflum. Bílarnir eru allir útbúnir sama Summum pakkanum frá Volvo.
Summum pakkinn inniheldur: rafdrifin framsæti, 18“ álfelgur,
Xenon gasljós með beygjustýringu, sport-mælaborð, állitaða þakboga og til viðbótar eru Summum bílar með
Bluetooth símtengingu og málmlit.
Traust viðskiptavina
Volvo hefur á Íslandi sem annarsstaðar notið trausts viðskiptavina sinna sem kunna að meta það sambland öryggis og akstursánægju sem Volvo stendur jafnan fyrir. Í nýjasta XC60 bílnum koma
þessir eiginleikar Volvo fram skýrar en áður og hefur því bílnum verið afar vel tekið á Íslandi, í ljósi aðstæðna. Volvo XC60 höfðar þannig til fólks á öllum aldri sem á það sameiginlegt að vita að það finnst meira í lífinu en bara skemmtilegir bílar.
Volvo XC60 verður sem áður segir í reynsluakstri og til sýnis næstu vikurnar.