Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | fim. 3. nóv. 2005

Volvo dregur úr hættu vegna blinda punktsins með BLIS

Stafræn myndavél er innbyggð í spegil
Stafræn myndavél er innbyggð í spegil
Volvo er fyrsti bílaframleiðandinn til að bjóða uppá hátæknilega lausn til að draga úr líkum á árekstri, sem verður vegna blinda punktsins, með nýju öryggiskerfi – BLIS (Blind Spot Information System). Uppfinning Volvo styðst við háþróaðan tölvuhugbúnað og tvær stafrænar myndavélar sem innbyggðar eru í báða hliðarspegla bílsins.

Skynjar umhverfið

Kerfið skynjar umhverfi sitt þannig að fari ökutæki innfyrir 9,5 metra langan og 3 metra breiðan radíus umhverfis bílinn, gerir kerfið ökumanni viðvart með gulu viðvörunarljósi sem staðsett er í innanverðum gluggapóstinum einsog sést á myndinni. Kerfið skynjar bæði bíla og mótorhjól og myrkur hefur ekki áhrif á BLIS. Kerfið gerir því viðvart þegar það skynjar ljós frá öðrum ökutækjum sem aka framúr.

Nauðsynleg aðvörun

Vegna aukins fjölda bifreiða í umferð telur Volvo að kerfi eins og BLIS, sem aðvarar ökumann áður en skipt er um akgrein eða við framúrakstur þar sem mikil umferð er á fjölakgreina vegi, muni nýtast einkar vel í viðleitni manna til að auka umferðaröryggi. BLIS leysir ökumanninn þó ekki undan þeirri ábyrgð að aka varlega og líta til hliðar áður en skipt er um akgrein. Kerfið veitir þeim sem aka mikið, hvort sem er á þjóðvegum eða í borgarumferð, aukið öryggi gagnvart ökutækjum sem koma inn í geisla myndavélarinnar. Hægt er að slökkva á BLIS með því að styðja á hnapp í mælaborði. Kerfið gerir þó greinarmun á ökutækjum á ferð og þeim sem ekki eru á ferð, vegriðum, götuljósum og þessháttar kyrrstæðum hlutum.

Fækkun slysa

„Að koma í veg fyrir slys og draga úr fjölda meiðsla og banaslysa í umferðinni er markmiðið í sífellt fleiri löndum. Við höfum að markmiði að fækka umferðarslysum í Svíþjóð og Hollandi um 30-50% á næstu 10 árum. Sem leiðandi fyrirtæki í öryggi bifreiða verðum við hjá Volvo að sjálfsögðu að vera virk í baráttunni til að ná þessu markmiði,” segir Ingrid Skogsmo, framkvæmdarstjóri öryggismála hjá Volvo.

BLIS í alla Volvo

Volvo kynnti BLIS fyrst í SCC hugmyndabíl sínum árið 2001 og er kerfið ein þeirra hugmynda sem orðið hafa að veruleika. BLIS er nú þegar hægt að panta með Volvo XC90 jeppanum og gerir Volvo ráð fyrir að unnt verði að fá BLIS í allar bíltegundir fyrirtækisins frá og með árinu 2006.
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli