19. maí 2012
Volvo
|
mið. 30. sep. 2009
Nýr Volvo C70 golfbíll
Volvo fer nýjar og skemmtilegar leiðir í hönnun C70 golfbílsins, sem er jafnframt fyrsti "bíllinn" frá Volvo sem gengur alfarið fyrir rafmagni.
Fyrr á þessu ári kynnti Volvo þróun og smíði á nýjum visthæfum C30 tvinntengilbifreiðum og nú nýverið var nýjum C30 rafbíl bætt við áætlunina. Þessi snotri rafbíll frá Volvo á hins vegar engan hlut að þeim málum, enda tæknilega séð mun einfaldari að allri gerð.
Volvo C70 í smækkaðri mynd
Volvo golfbíllinn var framleiddur í samvinnu við sænska fyrirtækið Pro Green Nordic og sker sig að mörgu leyti úr í samanburði við hefðbundnari gerðir golfbíla. Má þar fyrst nefna að útlit golfbílsins byggir á Volvo C70 í smækkaðri mynd.
Þá er hann eins sæta en ekki tveggja sæta, eins og venjan er. Fyrir vikið er hann léttari og með lengra drægi. Heildarþyngd er aðeins 220 kg, þrátt fyrir þær þrjár 12v rafhlöður sem knýja bílinn áfram, en hver vegur 75 kg.
Þessi þjónustulundaði Volvo er svo að sjálfsögðu til þjónustu reiðubúinn, ekki aðeins á golfvellinum heldur hvar sem hans er þörf, s.s. í stærri sýningarhöllum, verslunarmiðstöðvum eða á flugvöllum, svo að dæmi séu nefnd.
Nýi Volvo golfbíllinn verður frumsýndur á Volvo World Match Play golfmótinu sem fram fer á Casares á Spáni 29. október til 1. nóvember n.k.
Nánari upplýsingar og fleiri myndir