Volvo XC60 hefur átt stóran þátt í velgengni Volvo í Bandaríkjunum
Þrátt fyrir verulegan samdrátt í bílasölu í Bandaríkjunum, hefur Volvo tekist að auka söluna hjá sér að jafnaði um fimmtung á undanförnum fjórum mánuðum. “Þetta stefnir allt í rétt átt hjá okkur,” höfðu bandarískir fjölmiðlar nýlega eftir Doug Speck, framkvæmdastjóra Volvo Cars of North America.
Hefur sú yfirlýsing þótt heldur í hógværara lagi, sér í lagi með hliðsjón af því að að júlísala fyrirtækisins stefnir í að verða meiri en á sama tíma í fyrra, annan mánuðinn í röð. Framkvæmdastjórinn rekur þessa jákvæðu söluþróun fyrst og fremst til breyttra viðhorfa hjá bílakaupendum.
Traustur kostur verður frekar fyrir valinu
Nýr Volvo XC60 var frumkynntur á Bandaríkjamarkaði í mars á þessu ári og telur Peck að sá viðburður hafi auðveldað mönnum hans að fá tilfinningu fyrir breyttum áherslum hjá bílakaupendum. Þeir væru varkárari en áður og leituðu í auknum mæli að traustum kostum.
Bílakaupin væru jafnframt hugsuð lengra fram í tímann en áður, þar sem endurnýjun yrði ekki á döfinni í bráð. Hófsamur viðhalds- og viðgerðarkostnaður væri einnig ofarlega í huga og var það að mati Peck ein helsta ástæða þess áhuga sem City Safety eða borgarvörnin vakti, en það er nýr búnaður í Volvo XC60 sem getur hindrað aftánkeyrslu í þéttri borgarumferð.