Hefur þú áhyggjur af eldsneytiskostnaði? Prófaðu þyngdarlögmálið!
Volvo hefur smíðað tilraunabíl sem nær 87 km hámarkshraða án þess að nota vél eða dropa af eldsneyti.
Volvo “þyngdarlögmálsbíllinn” var hannaður og smíðaður í tilraunamiðstöð Volvo í Californiu sérstaklega fyrir hina árlegu hraðakeppni sem er til styrktar góðum málefnum – (The Extreme Gravity Competition) – þar sem hugmyndasmiðir helstu keppinautanna leiða saman hesta sína.
Hin straumlínulagaða og stílfærða hönnun náði 87 km hámarkshraða og sigraði keppinautana frá Audi, Bentley og Chrysler í keppninni um aðalverðlaunin fyrir hraðasta ökutækið, og var það annað árið í röð þar sem Volvo fær verðlaun í keppninni, eftir að hafa fengið verðlaunin fyrir bestu hönnunina árið 2004.
Eins og með alla Volvo bíla, var “Þyngdarlögmálsbíllinn” hannaður með áherslu á nútímalegan og skandinavískan þokka og, að sjálfsögðu, öryggi, sem inniheldur fimm punkta öryggisbelti, sérstyrkta burðarbita og veltivörn ásamt aflmiklu hemlakerfi
“Að ná þessum hámarkshraða í farartæki án vélar er fádæma góð samþætting hönnunar og verkfræði,” sagði Lars Erik Lundin, aðstoðarforstjóri og framkvæmdarstjóri Tilaunamiðstöðvar Volvo.
Þyngdarlögmálskeppnin aflar fjár fyrir tökubörn og veitir reynslu til að aðstoða þau að fóta sig í samfélaginu sem sjálfstæðir einstaklingar.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan