Kostnaðurinn við endurgerðina nam 20 milljónum evra en talsmenn Volvo segja að göngin muni margborga sig fyrir þróun og hönnun bíla: „Þessi fjárfesting okkar hefur þegar skilað skjótum hagnaði því okkur hefur tekist að minnka loftmótstöðuna í nýju Volvo C30 DRIVe línunni um meira en 10%,“ segir Tim Walker, sérfræðingur í loft- aflsfræði hjá Volvo. Í sama streng tekur Magnus Jonsson, aðstoðarforstjóri rannsóknar- og þróunardeildar Volvo bíla: „Nýuppgerðu vindgöngin verða sérlega gagnlegt tæki til að bæta bæði yfirbyggingu og undirvagn bílanna þannig að CO2 útblásturinn minnki til samræmis við umhverfisstefnu okkar.“
Vindgöngin hafa sem fyrr segir, þegar leitt til umbóta í þróun Volvo C30, en fram- leiðandinn hyggst nýta þessar jákvæðu niðurstöður í allri DRIVe línunni. Samkvæmt útreikningum Volvo, mun 10% minni loftmótstaða, samsvara 3g minna CO2 útblást- ursgildi á hverja 100 km. Breytingin skilar einnig umtalsverðum eldsneytissparnaði. Þannig mun ökumaður sem ferðast um 15. þús. km á ári, geta sparað 45 lítra af bensíni eða sem nemur næstum fullum tanki í Volvo C30.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan