Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | mán. 3. okt. 2005

Ný Volvo D5 (185 hestöfl) dísilvél vinnur til verðlauna fyrir dráttargetu

 

Aukið vélarafl og tog í nýju  D5 turbo dísil vélinni frá Volvo, ásamt nýja AWD fjórhjóladrifinu með átaksdeili (Instant Traction), hefur nú verið prófað til hins ýtrasta og uppskorið verðlaun sem besti bíllinn til að draga aftanívagna fyrir árið 2006, (The Caravan Club Towcar of the Year Award 2006), þar sem Volvo V70 D5 AWD og XC70 D5 AWD unnu til hvorki meira né minna en þrennra verðlauna:

  • V70D5 (185 hestöfl) AWD: Sigurvegari í “25.001 –33.000 punda flokknum”.V70 sigraði öfluga samkeppnisaðila, eins og Audi A6 Avant 2.7TDI SE, Mercedes C320 CDI Avantgarde SE estate, og 4x4 Nissan Pathfinder 2.5dCi.

  • XC70 D5 (185 hestöfl) SE Lux: Sigurvegari í bæði yfir "33.000 punda flokknum og undir 1800 kg AWD flokknum”. Í þessum verðflokki, heillaði XC70 D5 dómnefndina meira en BMW 530D M Sport Touring, Range Rover Sport og bæði bensín og dísilgerðir af nýja Jeep Grand Cherokee; ásamt í “AWD flokknum undir 1800 kg” hafði yfirburði yfir VW Golf GT TDI 4Motion og bæði Subaru Forester 2.5XT og Legacy 2.0RE Sports Tourer.

 Simon Munn, sölu og markaðstjóri Volvo í Bretlandi, sagði: “Við höfum alltaf haldið því fram að nýja D5 vélin og AWD fjórhjóladrifið með átaksdeilinum væri frábær samsetning,  og að fá það staðfest með  þessum verðlaunum sem bestu dráttarbílarnir fyrir aftanívagna er enn frekari staðfesting á því hvaða bílar séu þeir bestu, í flokki stórra skutbíla.” 

 

Öflugri dísilvél

Á síðasta ári, yfir 63% V70 kaupenda, og yfir 86% XC70 kaupenda, völdu eldri gerð 2.4 lítra, D5 fimm strokka dísil vélarinnar, þannig að árangur nýju D5 vélarinnar staðfestir að endurhönnun vélarinnar fyrir 2006 hefur aukið vinnslugetu, sveigjanleika og nákvæmni, og fært henni toppsætið í sínum flokki.

 Aflið í nýju EURO IV D5 vélinni (nú með sótagnafílterum sem aldrei þarf að skipta um) hefur verið aukið frá 163 hestöflum í 185 hestöfl, og áður mjög öflug togvinnsla uppá 340Nm er nú 400Nm. Sex þrepa geartronic sjálfskipting/beinskipting, tryggir hámarksvinnslu undir öllum kringumstæðum.

 

AWD með átaksdeili (Instant Traction)

V70 og XC70 eru einnig í boði með nýja AWD fjórhjóladrifinu með átaksdeili (Instant Traction). Forhlaðin elektrónísk Haldex kúpling þýðir að aflið er alltaf til staðar, og skynjar sjálfkrafa ef eitthvert hjólanna missir grip og færir um leið aflið til hinna hjólanna sem hafa betra grip – hvort heldur frá fram til afturhjóla eða hjólanna frá annari hlið til hinnar, og öfugt.

 Í venjulegur akstri, er u.þ.b 95% af aflinu á framhjólin, en AWD kerfið færir meira afl til afturhjólanna þegar ekið er af stað til að auka grip og stuðla að betra og öruggara upptaki – sem kemur sér sérstaklega vel þegar ekið er með meiri þyngd afturí t.d þegar aftanívagn er með í för.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli