Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | fim. 21. ágú. 2008

Volvo tímaritið LIV nú á netinu

Volvo tímaritið LIV nú á netinu

Volvo tímaritið LIV, sem ætlað er Volvo eigendum og bílaáhugamönnum, er nú fáanlegt í netútgáfu. Mikið hefur verið lagt í útgáfuna en þar geta menn lesið greinar, hlustað á viðtöl og horft á myndbrot svo fátt eitt sé nefnt.

LIV vex á nýjum vettvangi


Nýja LIV nettímaritið er unnið í samvinnu við Redwood útgáfufyrirtækið og markmið þess er að bjóða upp á eitt besta neyt- endatímarit í heimi. Samvinnan hófst fyrir þrettán árum með útgáfu á LIV tímaritinu í Bretlandi en hefur síðan vaxið og dafnað. Því er nú dreift í 1,5 milljónum eintökum í 75 löndum, á 30 tungumálum. Með net- útgáfunni er markið sett enn hærra og ætlunin er að miðla til enn fleiri Volvo unnenda, fróðleik í bland við afþreyingu, á nýjum og skapandi vettvangi.


Volvo bílar og lífstíll í bland í LIV


Í LIV nettímaritinu finna tölvunotendur allt sem þá þyrstir að vita um framleiðslu og hugmyndafræði Volvo fyrirtækisins, vel framsett á skemmtilegan og fræðandi hátt. LIV býður upp á ýmsar skemmtilegar greinar um allt milli himins og jarðar en þar má t.d. finna efni um skandinavíska hönnun, siði og venjur; forvitnilegt fólk, hvunndagshetjur, ferðalög, matargerð og að sjálfsögðu allt sem viðkemur Volvo bílum.

Nánari upplýsingar


LIV á netinu




Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli