Nýr Volvo C70. Tveir fyrir einn, harðtoppur (coupé) og opinn toppur (convertible), þú velur.
Volvo kynnir bíl án málamiðlana - C70. Þökk sé sérhönnuðum þriggja hluta niðurfellanlegum hörðum toppi fá eigendur C70 tvo bíla fyrir einn, bæði harðtopp og opinn topp. Hinn nýi Volvo C70 var kynntur á bílasýningunni í Frankfurt í september, fyrstu bílarnir afhentir í byrjun árs 2006.
“Okkur hefur tekist að hanna glæsilegan bíl með opnu þaki (convertible) sem breytist í jafn glæsilegan bíl með harðtopp (coupé) á örskotsstundu. Það er nóg að ýta á einn takka og 30 sekúndum síðar er umbreytingin yfirstaðin. Kaupendur fá því tvo fyrir einn og báða með plássi fyrir fjóra fullorðna, “segir forstjóri Volvo Hans-Olov Olsson.
Nýi Volvo C70 er nánast í sömu stærð og forverinn. Hallandi framhlutinn gefur straumlínulagaðan og sportlegan hliðarsvip. “Það er ekki auðvelt að hanna bíl með sama yfirbragðinu bæði með og án þaklínu,” segir Fedde Talsma, hönnunarstjóri hins nýja Volvo C70. “ Við ákváðum að byrja hönnunina á harðtoppnum. Þegar við vorum ánægðir með útkomuna, gerðum við breytingar á opnu útgáfunni með hliðsjón af harðtoppsútgáfunni. Reynslan hefur kennt okkur að þetta sé besta aðferðin.”
Samstarf með Pininfarina Hönnunin og framleiðslan á nýja Volvo C70 er árangur samstarfs við hinn þekkta ítalska hönnuð Pininfarina. Nýi bíllinn er settur saman í Uddevalla í Svíþjóð eins og fyrirrennarinn. “Pininfarina er frábær samstarfsaðili með langa hefð í hönnun og samsetningu á opnum bílum,” segir Hans-Olov Olsson.
Fyrsta kynslóð C70 með opnum toppi átti sitt besta söluár 2004, en þá seldustu yfir 8.000 bílar.
“Nýi C70 er einn af fyrstu opnu bílunum í lúxusflokki með bæði stálþaki og sætum fyrir fjóra fullorðna. Við trúum því að þetta sé mjög eftirsóttur eiginleiki. Þess vegna gerum við ráð fyrir meira en helmings söluaukningu samanborið við fyrstu kynslóð C70, “segir Hans-Olov Olsson.
Einstakt öryggi
Hinn nýi Volvo C70 var hannaður með nýja öryggisstaðla fyrir opna bíla að leiðarljósi. Bíllinn er byggður á mjög sterkri grind og skartar nokkrum áður óþekktum lausnum í hönnun opinna bíla. Aftengingu þaks við yfirbygginguna var mætt með sérstyrkingu og þróaðri tækni. Eitt dæmi um það eru loftpúðatjöld í hliðarhurðum (IC - Inflatable Curtains), nýjung sem eykur öryggi í hliðarárekstri.
Vegna þess að ekki er hægt að staðsetja þessi loftpúðatjöld í toppnum eins og í öðrum Volvo bílum eru þau staðsett í hliðarhurðum og blásast upp á við í hliðarárekstri.
Öryggishönnuðir Volvo hafa gert loftpúðana sérstaklega stífa sem veldur því að þeir haldast lengur uppi og verja því höfuð betur. Þar að auki rennur loftið mun hægar úr þeim til að auka vörnina komi það til að bíllinn velti. Þetta er nýjung í bílaheiminum.
Mikill undirvagnsstyrkur
Yfirbyggingin er í vandlega hönnuðu burðarvirki sem er ekki eingöngu innlegg í aukið öryggi, heldur leiðir einnig af sér mun stífari samsetningu undirvagns og yfirbyggingar - tvisvar sinnum meiri en í fyrstu kynslóð C70. Þegar toppurinn er uppi eykst styrkurinn um 10-15% til viðbótar.
“Stíf yfirbygging er mikilvæg fyrir aksturseiginleika bílsins,” segir Patrik Widerstrand, framleiðslustjóri C70. “Hún eykur stöðugleika bílsins og gerir hann auðveldari í stjórn. Akstursupplifunin verður því mun sportlegri og skemmtilegri.”
Vélalínan samanstendur af 5 strokka línuvélum. Þar er 220 hestafla turbo T5 vélin í fararbroddi, með 320 Nm tog. Einnig er 170 hestafla 2,4 lítra bensínvél í boði.
Síðar á árinu 2006 verður einnig 2.4 lítra 5 strokka, 180 hestafla díselvél í boði.
Skoðaðu nánar hér tækniupplýsingar, verð og búnað nýja Volvo C70
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan