Volvo bílar hafa hlotið margvíslegar viðurkenningar í Rússlandi síðustu misseri. Nýjustu rósina í hnappagatið hlaut Volvo XC90 en bíllinn var valinn besti jeppi ársins í Rússlandi. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem XC90 hlýtur þessa viðurkenningu en bíllinn hlaut þessa sömu viðurkenningu árið 2005 og 2007.
Vinsældir Volvo í Rússlandi miklar
Volvo XC90 virðist aldrei hafa verið jafn vinsæll í Rússlandi og nú enda í þriðja skiptið sem bíllinn hlýtur viðurkenninguna „Jeppi ársins í Rússlandi“. „Þetta var hörð samkeppni og við erum alsæl með niðurstöðuna“ sagði fjölmiðlafulltrúi Volvo bíla í Rússlandi, Alexei Kozhukhov, þegar hann tók við viðurkenningunni á samkomu í Moskvu á dögunum.
Volvo XC90 valinn besti bíllinn á markaðnum
Meðal rússneskra bílaeigenda var Volvo XC90 valinn sem bestu kaupin á bílamarkaðnum. Það er 4X4 bílaklúbburinn í Rússlandi sem heldur keppnina og er bílum skipt í átta flokka. Rúmlega eitthundrað bílar voru tilnefndir í keppnina og aðeins sextán komust í úrslit. Allir bílaeigendur gátu kosið í gegnum heimasíðu bílaklúbbsins eða í gegnum smáskilaboð.
Rússland með stærstu markaðshlutdeild í Evrópu
„Markaðshlutdeild Volvo var stærst í Rússlandi af öllum öðrum Evrópuríkjum á síðasta ári þannig þessi viðurkenning er mjög mikilvæg fyrir okkur“, sagði forstjóri Volvo bíla í Rússlandi, David Thomas. „Rússar vilja stóra bíla þess vegna nær Rússland að vera í öðru sæti á eftir USA í alþjóðlegum sölutölum enda hlökkum við mikið til að setja nýja jepplinginn okkar, Volvo XC60 í sölu á næstu misserum“, sagði Thomas að lokum.