"Hrein innandyra og utandyra" tækni heldur ökumönnum meira vakandi við aksturinn.
Sumarhiti getur auðveldlega breytt andrúmslofti innandyra í bíl í samsetningu eiturefna og mengunar sem losnar frá efnum úr innréttingu bílsins. Bættu frjókornum í þessa samsuðu og jafnvel stystu vegalengdir geta dregið máttinn úr ökumönnum eða skert einbeitinguna.
Volvo hefur lausnina að heilbrigðari akstri undir þessum skilyrðum og er staðalbúnaður í öllum Volvo bílum(1) með "Hreinn innandyra og utandyra" umhverfisstefnu sinni sem inniheldur ECC tölvustýrða loftkælingu með virku lofthreinsikerfi (IAQS) og frjókornasíum, ásamt innréttingum sem standast alþjóða "Öko-Tex"(2)umhverfisstaðalinn til að hanna ofnæmis-fría innréttingu - sérlega þægilegt fyrir þá sem þjást af asma, heymæði eða húðofnæmi eins og exem (3).
Hreinn að innan...
Að uppfylla alþjóðastaðalinn "Öko-Tex 100" er mjög mikilvægt skref í þá átt að geta boðið uppá sem heilbrigðasta umhverfi innandyra í bíl og tryggja að öll efnisnotkun í innréttingu sé án nokkurra skaðlegra efna. Í framhaldi af því, leggur Volvo mikla vinnu í innréttingar í sínum bílum þar sem stöðugar prófanir á alls konar efnum, eins og td. þeim sem notuð eru í sætisbeltum, teppum, mælaborðum, límum og lituðum efnum, skordýraeitur og málmefni, til að athuga hvort einhverjar efnasamsetningar framkalli ofnæmi, jafnvel í gríðarmiklum hita.
Jafnvel leðurinnréttingin stenst þessar kröfur, eftir litun án krómefna, þökk sé notkun á náttúrulegum framleiðsluaðferðum til að útiloka króm, sem ásamt nickelefnum í tökkum og stjórntækjum getur kallað fram snerti-ofnæmisviðbrögð. Þar af leiðandi, hafa önnur smáatriði, eins og handbremsuhandfangið og Volvo merkið á stýrinu, einnig verið prófuð gagnvart snerti-ofnæmi.
Til að viðahalda ofnæmis- og rykfríu lofti innandyra, til viðbótar ECC tölvustýrðu loftkælingunni og frjókornasíunni, eru allir Volvo bílar útbúnir lofthreinsikerfi (IAQS) sem notar rafeindaskynjara til að mæla mengunina sem berst inn og lokar sjálfkrafa loftinntakinu þegar mengunin fer yfir ákveðið lágmark - til dæmis, þegar ekið er í þungri umferð innanbæjar, umferðaröngþveiti eða í göngum. Samsettur filter með virkum kolefnum eyða vondri lykt og lækkar magn niturefna, skaðlegra óson efna og kolefna.
Volvo hefur einnig sett saman sérstakan "lyktarhóp" sem lyktar af öllum efnum sem notuð eru í innréttingu Volvo bíla til að ganga úr skugga um að engin óæskileg lykt sé af efnunum og geti þá vakið upp viðbrögð til hins verra. Hlutirnir í innréttingunni eru hitaðir upp til að líkja eftir hita í miklu sólskini, þar sem hiti magnar upp alla lykt í innréttingunni.
...sem utan
Önnur umhverfisvæn uppfinning sem aðeins Volvo hefur er PremAir sem hreinsar sjálfkrafa loftið í gegnum vatnskassann og umbreytir um 75% af ósonefnum við jörðu, sem verður til við samsetningu niturefna, kolefna og sólskins, í hreint súrefni.
Ennfremur, var Volvo einn af fyrstu bílaframleiðendunum til að hljóta hinn alþjóðlega umhverfisstaðal, ISO 14001, og urðu fyrstir til að upplýsa um áætlaðan líftíma allra Volvo gerða, sem byrjaði með Volvo S80 árið 1998. Þessar upplýsingar um núverandi gerðir Volvo bíla er hægt að finna á www.volvocars.com/epi.
Veldu þá gerð af Volvo sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan