Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | fös. 23. maí 2008

Brimborg í átaki með Umferðarstofu fyrir auknu umferðaröryggi

Brimborg í átaki með Umferðarstofu fyrir auknu umferðaröryggi
Brimborg hefur alla tíð lagt mikið uppúr umferðaöryggi og lagði Umferðastofu lið á dögunum við gerð 24 fræðslumynda sem verða sýndar í Sjónvarpinu, Stöð2 og Skjá 1. Framleiðsla fræðslumyndanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda í baráttunni fyrir bættri umferðarmenningu og fækkun umferðarslysa á Íslandi.

Brimborg leggur Umferðastofu lið

Brimborg lagði til bíla sem notaðir voru í fræðslumyndirnar 24 en þær er hægt að skoða á heimasíðu Umferðarstofu og munu gagnast mjög vel til almennrar umferðarfræðslu. Þá býður Umferðastofa öllum öðrum vefmiðlum sem láta sig umferðaröryggi varða að tengja myndirnar inn á vefsíður sínar. Lengd myndanna er frá 30 sekúndum og upp í tæpar tvær mínútur. Umferðarstofa annaðist gerð handrits í samstarfi við fulltrúa ökukennara og félagasamtaka bifhjólamanna en Prófilm sá um framleiðslu.

24 áhugaverð myndbönd sem koma að umferðaöryggi

Myndirnar fjalla um ýmis atriði sem vert er að rifja upp og varða umgengni við bíla, bifhjól og reiðhjól. Sem dæmi um efnistök má nefna að fjallað er um þær reglur sem gilda um akstur í hringtorgum, val á akreinum, framúrakstur, bil á milli bíla og ýmis atriði sem ökumenn bifhjóla þurfa helst að varast. Myndirnar verða fyrst um sinn í boði í íslenskri útgáfu en Umferðarstofa hefur einnig látið gera fræðslumynd á fjórum tungumálum sem hugsuð er fyrir erlenda ferðamenn.

Nánari upplýsingar


Öll myndböndin má skoða á heimasíðu Umferðarstofu

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli