Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | þri. 6. sep. 2005

Nýjung í Volvo öryggi stuðlar að öruggari umferð

Nýjasta öryggisafurð Volvo er hönnuð með það í huga að auka öryggi í akstri og samanstendur af tveimur uppfinningum,  til að koma í veg fyrir akstur undir áhrifum og slys á of miklum hraða.

* Innbyggður áfengismælir og sérstakt kerfi í sætisbeltum til varnar akstri undir áhrifum.

* Forritanlegur lykill í kveikjulásinn sem takmarkar hámarkshraða.

Til að finna út hvort ökumaður er öruggur og löglegur til aksturs, og ekki undir áhrifum áfengis, hefur Volvo útbúið innbyggðan öndunarmæli sem er áfastur við bílbeltið og verður að nota áður en vélin er sett í gang. Öndunarmælirinn sýnir grænt ljós ef ökumaðurinn er í lagi til aksturs og, þegar þegar bílbeltið er fest, er hægt að setja í gang eins og venjulega. Hins vegar, ef ökumaður er yfir mörkum, lýsir rautt ljós á öndunarmælinum og er þá ekki hægt að setja bílinn í gang.

"Samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu, deyja u.þ.b 10.000 manns árlega í umferðarslysum tengdum áfengisakstri. Til viðbótar, leiða mörg slys til alvarlegra áverka vegna þess að ökumaður eða farþegi notaði ekki bílbelti, sem er ástæða þess að við vinnum nú að framleiðslu á "öndunarmæla lás" til að koma í veg fyrir þessi óþarfa slys," segir Ingrid Skogsmo, forstjóri Öryggismiðstöðvar Volvo í Gautaborg, Svíþjóð.

Hin öryggisnýjungin sem Volvo kynnir er sérstakur lykill í kveikjulásinn sem hægt er að forrita til að takmarka hámarkshraða og er beint að yngri eða minna reyndum ökumönnum sem, tölfræðin sýnir, að eru líklegri til að valda slysum vegna hraðaksturs.

Samkvæmt tölum frá Evrópusambandinu, er hættan á að aldurshópurinn 18-25 ára sé valdur að meira en helmingi fleiri slysum en í aldurshópnum 26-50 ára, og slysin verða oftar en ekki vegna hættulegrar samsetningar hraðaksturs og reynsluleysis.

"Með notkun á þessum sérstaka "hraðalykli", er auðveldlega hægt að forrita hámarkshraða þannig að ekki sé ekið yfir löglegum hraða. Til dæmis gefur það foreldrum aukna öryggistilfinningu að lána bílinn sinn til barna sinna með nýtt ökuskirteini, eða auðveldar þeim að knýja fram "bráðabirgðaskirteini" sem nokkur Evrópuríki gefa út til nýrra ökumanna sem ekki meiga aka yfir 90 km hraða á þessu reynslutímabili," segir Ingrid Skogsmo.

Volvo heldur þróunarvinnunni áfram með þessar öryggishugmyndir, og kannar áhuga almennings og bílgreinarinnar við þeim, áður en ákveðið verður að setja þær í framleiðslu.

 
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli