Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo frétt 

19. maí 2012
Volvo | mán. 28. apr. 2008

Volvo XC70 kosinn bíll ársins í Rússlandi

Volvo XC70 kosinn bíll ársins í Rússlandi
Volvo XC70 var á dögunum kosinn bíll ársins í Rússlandi í annað sinn á þremur árum.

Mikill heiður fyrir Volvo

Viðurkenningin er mikill heiður fyrir Volvo enda Rússland eitt stærsta land í heimi. Þetta er áttunda árið sem keppnin er haldin en mjög margir þátttakendur tóku þátt í valinu en alls kusu hátt í 105 þúsund einstaklingar 19 ólíka bílahópa sem tóku þátt í keppninni.

Volvo sigraði verðuga andstæðinga

Í hópnum sem Volvo XC70 bar sigur úr bítum voru m.a. Audi All Road Quattro og Subaru Legacy Outback. Anouk Poelmann, framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála Volvo í Rússlandi, tók á móti viðurkenningunni fyrir hönd Volvo.

Volvo sigrar í annað skipti á þremur árum

Árið 2006 sigraði eldri kynslóð Volvo XC70 þennan sama hóp bíla þannig er mjög ánægjulegt að nýja kynslóð XC70 sigri aftur. Þetta þýðir að Rússneskir viðskiptavinir vilja bíl með eiginleika jeppa og fólksbíls sagði Poelmann að þessu tilefni.

Mikil aukning í sölu hjá Volvo í Rússlandi

Volvo bílar hafa síðustu ár verið að skipa stóran sess í hjörtum Rússa því mikil söluaukning hefur verið hjá Volvo í Rússlandi síðustu ár. Sem dæmi jókst salan milli áranna 2006 og 2007 um 95% en heildarfjöldi seldra bíla var 21.077 bílar

Nánari upplýsingar

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli