Áratugum saman hafa hönnuðir Volvo leitað sannleikans líkt og Albert Einstein, rannsakað bíla við ólíkar aðstæður, reiknað út og safnað þekkingu. Hér er eitt dæmið. Volvo XC90, tækni sem hrífur alla sem henni kynnast. Slík afburðatækni hefur ekki áður sést í jeppum enda flókin stærðfræði. Skoðaðu eiginleika Volvo XC90 af nákvæmni.
Lifðu heilbrigðu lífi
Skoðaðu lífið. Yfirburðatækni fylgist með gæðu loftsins umhverfis bílinn og breytir 75 prósent af slæmu ósóni (sem liggur við jörðu) og freistar inngöngu í bílinn í hreint súrefni. Hugsaðu um börnin. Fjórhjóladrifið er sjálfvirkt og eitt hið fullkomnasta sem til er.
Lágur þyngdarpunktur
Hönnuðir Volvo fundu snilldarleið til að lækka þyngdarpunktinn í Volvo XC90 en of hár þyngdarpunktur hefur verið vandamál við hönnun jeppa þar sem hann dregur úr öryggi og aksturseiginleikum. Veldu Volvo. Þar sem öryggi farþega er Volvo efst í huga létu hönnuðirnir ekki þar við sitja því að auki bættu þeir við tveimur nýjum tækniuppfinningum: nýja stöðugleikastýrikerfinu DSTC og RSC veltivörninni. DSTC leiðréttir mistök í akstri en RSC síreiknar líkur á veltu og bregst við ef þurfa þykir.
Boronstál
Rúsínan í pylsuendanum er sérstyrkt Boronstálið í burðarvirki yfirbyggingarinnar sem er 5 sinnum sterkara en venjulegt stál. Útkoman úr dæminu er hámarksöryggi í Volvo XC90, sem veitir honum algera sérstöðu í samkeppni um öryggi bíla. Gefðu þér tíma og skoðaðu yfirburðatækni Volvo XC90. Þetta er Volvo XC90. Öryggi fyrir allt að sjö manns og aðra vegfarendur einnig.
Prófaðu
Þú prófar hann og færð faglega ráðgjöf í afburðartækni sem einkennir Volvo XC90. Öryggi er lúxus – lifðu í lúxus. Komdu í Brimborg og spurðu sérfræðinga Volvo á Íslandi um lúxus sportjeppann Volvo XC90.