Forstjóri Volvo Cars, Fredrik Arp, segir að hinn nýi Volvo XC60 sé bæði öruggasti og flottasti Volvo sem fyrirtækið hafi hannað, en bíllinn var frumsýndur í endanlegri gerð á alþjóðlegu bílasýningunni í Genf sem hófst í byrjun mars 2008.
Einstakur sportjeppi
Volvo XC60 er nýr sportjeppi með aldrifi (AWD) sem er nýkominn á markað. Bíllinn er spennandi blanda tveggja megineinkenna, annars vegar jeppans með stærri dekkjum, sterkari grind og hærri lægsta punkti, og hins vegar framúrskarandi aksturseiginleikum fólksbílsins. Útlit hans, sem einkennist af fljótandi og fáguðum línum, framkalla sterkan persónuleika og mikla nærveru.
Sterkari nærvera
Volvo hefur þróað nýja hönnun sem notuð var við gerð XC60. Að sögn Steve Mattin, hönnunarstjóra, byggir hún á nýju útliti og hefur m.a. að markmiði að skapa öllum nýjum bílum frá Volvo enn sterkari nærveru með ásýnd sem þekkist umsvifalaust og úr meiri fjarlægð. Það á enginn velkjast í vafa um að þar fari Volvo, segir Mattin.
Borgaröryggi (City Safety) er staðalbúnaður
Volvo XC60 er, eins og aðrar gerðir Volvo, búinn miklum staðalbúnaði, ekki síst miklum öryggisbúnaði. Meðal þess sem nú lítur dagsins ljós í fyrsta sinn í XC60, er öryggisbúnaður, sem tekur sérstaklega mið af aðstæðum í þéttbýli. Kerfið kallast City Safety á ensku, sem gæti útlagst sem borgaröryggi á íslensku, og er í raun sjálfvirk bremsa því henni er ætlað að koma í veg fyrir aftanákeyrslur í borgarumferðinni og annars staðar þar sem bílar aka í röð á litlum hraða. Kerfið fylgist með fjarlægð milli bílsins og næsta bíls fyrir framan og hægir sjálfkrafa á bílnum aki ökumaður of nálægt og stöðvar hann alveg áður en hann skellur aftan á bílnum fyrir framan.
Öruggasti bíllinn
„Við erum fyrsti bílaframleiðandinn í heiminum sem býður upp á þetta kerfi sem hluta staðalbúnaðar og því má með sanni segja að Volvo XC60 sé öruggasti bíllinn sem Volvo hefur framleitt,“ segir Fredrik Arp. Að auki býður Volvo uppá önnur öryggiskerfi, svo sem ACC aðlögunarhæfa hraðastillinn og eftirlitskerfið BLIS, sem gegna samskonar hlutverki og City Safety, en er miðað við akstur á þjóðvegum og hraðbrautum, þar sem hraði er meiri. Því má segja að Volvo bjóði nú þegar „árekstrarvarnakerfi“ sem henta hvaða hraða sem er. Þess má geta að evrópsk tryggingafélög líta nú þegar á borgaröryggiskerfi Volvo í XC60 sem bestu tækninýjungina sem hefur að markmiði að draga úr aftanákeyrslum í umferðinni.
Tvær vélar í boði
Í XC60 er hægt að velja um tvær vélar frá framleiðanda, eina bensínvél og eina dísilvél.
• Sex strokka 285 hestafla T6 bensínvél með forþjöppu
• Fimm strokka 205 hestafla D5 dísilvél með forþjöppu
Framleiddur í Belgíu
Nýi sportjeppinn verður framleiddur í verksmiðju Volvo í Ghent í Belgíu og verður sérstaklega framleiddur fyrir fimm stærstu markaðssvæðin, s.s. Bandaríkin, Þýskaland, Bretland, Rússland og Kína.