Leitaðu
Smelltu á flokk

Volvo XC70 • Um XC70 

19. maí 2012

Söðlaðu um. Vertu hvort tveggja.

Vertu á brú milli fólksbíls og jeppa. Volvo XC70. Tveir fyrir einn. Söðlaðu um, breyttu um stíl. Komdu í Brimborg og spurðu sérfræðinga Volvo á Íslandi um „jeppafólksbílinn“. Þú velur öryggi, öðruvísi hönnun og einstaka aksturseiginleika. Volvo XC70.

Þú nýtur verndar

Volvo XC70 er útbúinn margvíslegum tækninýjungum í þeim tilgangi að vernda þig og þína. AWD-fjórhjóladrifið er undratækni sem stöðugt vakir yfir ástandi vegar. Sjálfvirkt meta skynjarar veggripið fyrir þig; tapi hjól afli, taka hin við. Tapi þrjú hjól afli, tekur það fjórða við. TRACS-spólvörnin tryggir að þú komist auðveldlega af stað úr kyrrstöðu í snjó og hálku. Nýja stöðugleikastýrikerfið DSTC leiðréttir mistök í akstri og minnkar líkurnar á því að bíllinn skriki til. Veldu Volvo XC70. Vertu á brú milli fólksbíls og jeppa. Komdu í Brimborg og reiknaðu út Volvo XC70 - skoðaðu smáatriðin, þyngdarpunktinn, þyngdardreifinguna og veghæðina sem er jafnvel hærri en veghæð jeppa.

Umhverfið nýtur verndar

Tryggt er að Volvo bílar hafi sem minnst áhrif á umhverfið. Þú kynnir þér sérstaka tækni Volvo sem vaktar gæði and-rúmsloftsins umhverfis Volvo XC70. Tækni sem breytir 75 prósent af slæmu ósóni (sem liggur við jörðu) í hreint súrefni. Þú finnur sérvalið tau- eða leðurefni í stýri, lyklum og öðrum snertiflötum sem hafa verið ofnæmisprófuð samkvæmt alþjóðastaðli Öko-Tex og eru laus við ofnæmisvaka. Spurðu um skynvædda miðstöð Volvo XC70 sem hindrar að mengun berist inn í farþegarýmið. Hugsaðu um börnin. Lifðu í lúxus. Veldu Volvo.


Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli