Leitaðu

Smelltu á flokk

Um V60 

06. febrúar 2012

Volvo V60 er vörður lífs þíns

Ein af grunnþörfum sérhverrar fjölskyldu er öryggi. Öryggi í lífi og leik. En öryggið ætti ekki að koma til á kostnað frelsisins. Því er nauðsynlegt að feta hinn þrönga meðalveg á milli öryggis og frelsis til að njóta lífsins. Nýr Volvo V60 er vörður þess lífs þar sem þessi þröngi vegur er fetaður. Volvo V60 er bíllinn sem sameinar frelsi til leiks og þrá eftir öryggi. Volvo V60 er bíllinn fyrir þá sem njóta líðandi stundar, bíllinn fyrir þá sem vilja öryggi svo hægt sé að lifa lífinu – lifandi.

Fáir bílaframleiðendur hafa sinnt þessu hlutverki eins vel og Volvo. Í áratugi hafa bílar frá Volvo verið fyrirmynd þeirra athafnasömu sem hafa lært að sameina vinnu og leik, öryggi og frelsi. Nýr Volvo V60 er bein arfleifð þessarar hefðar þar sem kröfur um rými, þægindi, gæði, notagildi og öryggi eru afar háværar. Það mætti segja að Volvo V60 sé holdgervingur skutbíls hins athafnasama en um leið ekta herragarðsvagn.

Frelsið felst í örygginu

Þeir sem eiga Volvo bíla vita um hvað öryggi snýst og þekkja frelsið sem því fylgir. Það er skilyrðislaus krafa Volvo að bílar þeirra séu eins öruggir og kostur er. Volvo V60 býr því yfir nýstárlegum tæknibúnaði ætluðum til að viðhalda forystu Volvo á því sviði.

Í Volvo V60 fæst einn sá þróaðasti og fullkomnasti öryggisbúnaður sem til er, búnaður sem hefur það helsta markmið að tryggja öryggi ökumanns og farþega eins vel og framast er unnt. Óhjákvæmilega finna eigendur Volvo því líka til frelsistilfinningarinnar því hvað annað er frelsi en lausn frá óöryggi?

Öruggur og spennandi

Nýr Volvo V60 fer reyndar lengra en svo að hann teljist eingöngu öruggur. Nýr Volvo V60 er nefnilega líka afar spennandi bíll, raunar er Volvo V60 annar bíllinn í nýrri hönnun Volvo sem er ætlað að höfða til hinna leikglöðu, með hrífandi útlit og lokkandi aksturseiginleika.

Volvo V60 er því hinn fullkomni bíll þeirra athafnasömu. Bíllinn fyrir meðvitað fólk sem veit hvað lífið hefur upp á að bjóða. Þegar Volvo V60 var hannaður var virðing fyrir gæðum ofarlega í huga hönnuðanna svo túlka mætti kjarnagæði Volvo V60 bílsins sem best. Þetta finna þeir sem skoða Volvo V60. Hvert smáatriði hefur verið unnið af natni og hver einasta lausn þaulhugsuð með tilliti til notagildis, fagurfræði, skynjunar og öryggis. Það er þannig sem hönnuðum Volvo V60 hefur tekist að ná samruna tveggja mikilvægra grunnþarfa nútíma samfélagsins, öryggis og leiks.

Í faðmi öryggis og tækni

Volvo býr yfir háleitri framtíðarsýn og til að ná henni hafa verkfræðingar Volvo þróað einn fullkomnasta bíl nútímans, bíl sem er í senn öruggur og spennandi.

Þannig býr Volvo V60 yfir stöðugleikastýringu sem tryggir öryggi en leyfir þó sportlegan akstur þegar sá gállinn er á ökumanni bílsins. Þá er Volvo V60 búinn sérstakri beygjuspólvörn sem gerir bílnum kleift að taka beygjur á meiri hraða og af meira öryggi en ella. Ökumaður bílsins fær á öruggan hátt svigrúm til að laga bílinn að sínu eigin upplagi.

Það eru svo ekki bara þeir sem sitja inni í Volvo V60 sem njóta öryggisbúnaðarins því í Volvo V60 er einnig fáanleg framúrstefnuleg tækni sem greinir fótgangandi fólk sem getur mögulega gengið í veg fyrir bílinn. Radar bakvið grillið dregur 150 m fram á við og vaktar stöðugt það sem er framundan.

Vegfarendaskynjarinn (Pedestrian Detection) getur komið í veg fyrir óhapp á hraða undir 35 km/klst. en dregur úr alvarleika óhappa á meiri hraða en það. Búnaðurinn er hluti af aukabúnaði, árekstarvaranum, sem varpar ljósi úr mælaborði upp á framrúðuna ef bíllinn nálgast hindrum á of miklum hraða. Ef ekki er brugðist við bætist hljóð við frá kerfinu og ef enn er ekki brugðist við nauðhemlar bíllinn á síðustu stundu.

Nýr Volvo V60 er ennfremur útbúinn Borgaröryggi (City Safety) sem staðalbúnaði en það kemur í veg fyrir aftanákeyrslur á hraða undir 30 km/klst. Þá fæst einnig sem aukabúnaður Veglínuskynjari (Lane Departure Warning), Ökumannsviðvörun (Driver Alert), BLIS blindblettsviðvörun og aðlögunarhæfur hraðastillir (Adaptive Cruise Control). Með hraðastillinum er hægt að stilla fjarlægð í næsta bíl þannig að Volvo V60 hægir á sér ef næsti bíll á undan gerir það. Kerfið virkar upp að 200 km hraða. Einnig er hægt að láta bílinn elta aðra bíla, eða „teika“ í innanbæjarakstri frá 0-30 km hraða þannig að hann fylgi bílnum á undan. Eftir það tekur fjarlægðarskynjarinn við þar sem hámarkshraðinn er stilltur sem og ákjósanleg vegalengd í næsta bíl. Þetta er til viðbótar við allan hefðbundnari öryggisbúnað eins og stöðugleikastýringu, læsivarða hemla, líknarbelgi og sérstyrkta yfirbyggingu.

Veldu öryggi og frelsi í fáguðum umbúðum

Alltumlykjandi öryggi Volvo V60 er einn mikilvægasti hönnunarþáttur bílsins. Við hönnun Volvo V60 var þess þó gætt að huga vel að þeim þáttum sem frelsið getur veitt. Þetta þýðir að Volvo V60 er ekki einungis gríðarlega öruggur fjölskyldubíll, heldur líka ljónskemmtilegur akstursbíll, hlaðinn gæðabúnaði sem gerir akstur og notkun bílsins auðvelda og þægilega. Allt þetta kemur svo í afar fáguðum umbúðum sem geisla af öryggi og frelsi.

Svona er Volvo V60, fjölskyldubíll framtíðarinnar. Öruggur bíll fyrir þig, þína nánustu, og þá sem eru í þínu umhverfi.

Vertu skrefi á undan – veldu öryggi – veldu Volvo V60.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli