Leitaðu
Bíll á mynd: S60
Bíll á mynd: S60
Smelltu á flokk

Volvo S60 • Um S60 

06. febrúar 2012

Volvo sannar vitsmunalega tilvist okkar

Nýr Volvo S60 hefur sterkari tengingu við mannfólkið en við flest gerum okkur grein fyrir því bíllinn er svo miklu meira en augað nemur. Bílar í dag eru í senn skúlptúrar tækninnar sem sönnun vitsmunalegrar tilvistar okkar. Það mætti segja að hlutirnir sem við búum til skilgreini heiminn eins og við þekkjum hann. Volvo S60 er þannig holdgervingur tilbúins heims, hlutur sem er búinn til úr náttúrunni, fyrir „náttúru“ sem við höfum skapað okkur sjálf.

Ekki geta allir bílar státað af þessu hlutverki því fáir bílaframleiðendur hafa lagt jafn mikla vinnu í bíl og Volvo hefur lagt í nýjan S60. Nýr Volvo S60 er hápunktur tæknilegrar þekkingar mannsins, en byggir á því sem mestu máli skiptir, siðferðislegum grunni. Volvo S60 er bíll 21. aldarinnar, einn öruggasti bíll sem völ er á, bíll sem er gerður til þess að endast og bíll sem er einmitt hannaður fyrir þá sem gera sér grein fyrir því að það fyrirfinnst meira í lífinu en spennandi bílar. Það er einmitt kjarni þess sem Volvo gerir – að vernda líf, með tilbúnum hlut sem í hefur farið gríðarleg hugsun – með það að markmiði að hjálpa fólki að glæða líf sitt tilgangi.

Öryggið tryggir frelsi

Volvo á sér skýra framtíðarsýn sem markast af eindreginni kröfu Volvo um gæði og öryggi. Nýr Volvo S60 er nýjasti framvörður Volvo í sókn sinni til framtíðar. Bíll sem er hlaðinn nýjustu tækni, þróaðasta öryggisbúnaði sem völ er á og gæðum 21. aldarinnar. Þeir sem aka nýjum S60 munu kynnast áður óþekktu öryggi sem tryggir frelsi þeirra, því hvað annað er öryggi en frelsi frá óöryggi. Lifðu í öryggi – veldu frelsi – veldu Volvo S60.

Volvo þekkir gæði

Nýi Volvo S60 bíllinn er glæsilegt fley sem er ætlað að túlka nýja stefnu Volvo þar sem heitari tilfinningar ráða meiru en áður. Nýr Volvo S60 er þó eins og aðrir Volvo bílar, fágaður bíll fyrir meðvitað fólk – bíll sem hreyfir ekki bara fólk, heldur hreyfir við fólki. Volvo S60 er einskonar holdgervingur endurmats gilda þar sem öryggi og virðing fyrir gæðum er helsta fótfesta frelsis nútíma fólks.

Kröfur dagsins í dag eru háleitar. Öryggið eitt og sér er ekki nóg heldur skal nýi bíllinn mæta öryggiskröfunum með ástríðufullri hönnun, sportlegum einkennum og einstökum aksturseiginleikum.

Það er meðal annars þess vegna sem bíllinn lítur út fyrir að vera tvennra dyra hlaðbakur en er í raun fernra dyra. Bíllinn er afar rennilegur, kraftalegur, nánast eins og meitlaður úr steini. Styrkur bílsins er sjáanlegur. Lágar rúðurnar víkja fyrir hárri hurðarlínu sem er virki farþeganna, virki hlaðið tækni og tólum.

Vitsmunalegt val – tæknilegir yfirburðir

Volvo S60 er hlaðinn nýjustu tækni enda bíllinn einn af röð nýrra bíla sem ætlað er að hjálpa Volvo að ná háleitri framtíðarsýn sinni. Volvo S60 býr yfir þróaðri stöðugleikastýringu sem leyfir sportlegri akstur og sérstakri beygjuspólvörn sem gerir bílnum kleift að taka beygjur hraðar, með meiri mýkt og öruggar en áður.

Allir vegfarendur njóta ennfremur góðs af öryggi Volvo S60. Tekið hefur verið tillit til gangandi vegfarenda í hönnun bílsins og hægt er að fá sem aukabúnað tækni sem á sér engan sinn líkan – búnað sem greinir gangandi vegfarendur og stöðvar bílinn ef útlit er fyrir að bíllinn stefni á manneskju. Búnaður getur komið í veg fyrir óhapp á hraða undir 35 km/klst en dregur úr alvarleika óhappa á meiri hraða. Nýr S60 er ennfremur með innanbæjar árekstarvörn sem kemur í veg fyrir aftanákeyrslur á hraða undir 30 km/klst.

Fágaðri en nokkur annar Volvo

Sem bíll framtíðarinnar er nýr Volvo S60 hannaður til þess að breyta viðhorfum, hreyfa við fólki, bæði andlega sem líkamlega. Sem ávallt, skuldbindur Volvo sig til þess að vera fremst í öryggi. Allir nútíma bílar hafa smá Volvo í sér, hvort sem það er þriggja punkta bílbeltið, alltumlykjandi líknarbelgir eða öryggisgler. Engin býr þó yfir því sem nýr S60 hefur – öryggi til framtíðar – fyrir þig og þína nánustu.

Vertu skrefi á undan – veldu öryggi – veldu Volvo S60.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli