Leitaðu

Smelltu á flokk

Volvo S40 • Um S40 

06. febrúar 2012

Volvo S40 - hagkvæmur og glæsilegur kostur

Öryggi, ending og lífsgildi nútíma fjölskyldna liggja til grundvallar hönnun Volvo S40 og V50, sem er wagonútgáfa S40. Hér ræður einfaldleiki og hagkvæmni för án þess að slakað sé á kröfum um glæsileika í útliti og hönnun farþegarýmis.
Skoðaðu hönnun innra rýmis Volvo S40 og V50. Stjórnborðið er hið fyrsta sinnar tegundar í heiminum og er aðeins að finna í Volvo S40 og V50. Sérvalin efni í snertiflötum eru laus við ofnæmisvaka samkvæmt alþjóðlegum staðli Öko-Tex.
Þú velur um 8 mismunandi vélar, fimm bensínvélar og þrjár díselvélar. Og staðalbúnaður Volvo S40 er glæsilegur.

Vatnskassi S40 og V50 er, eins og annarra Volvo bíla, búinn sérstökum búnaði sem vaktar gæði andrúmsloftsins og breytir 75% af ósoneyðandi efnum í hreint loft og jafnvel miðstöðin hindrar að mengun frá öðrum bílum berist inn í bílinn.
Gagnrýnendur erlendra bílablaða eru á einu máli um að með Volvo S40 og V50 hafi Volvo tekist að smíða bíla sem eigi fullt erindi í samkeppnina við þýska lúxusbíla. Aksturseiginleikar þykja sambærilegir við það besta sem gerist hjá þýskum keppinautum Volvo.
Komdu í Brimborg og prófaðu Volvo S40 eða V50. Veldu bíl sem færir þér sanna ánægju í akstri. Veldu gleði og ánægju, öryggi og hagkvæmni í rekstri. Veldu Volvo.

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli