Volvo C30 er fjögurra manna tveggja dyra bíll með verulega sportlegri ásýnd. Þú tekur umsvifalaust eftir mjög svo einkennandi afturhlera bílsins sem gulltryggir að sá sem á eftir kemur veit nákvæmlega hver er fyrir framan. Volvo C30 er fyrir þá sem vilja vera kúl!
Volvo C30 á sviðið þar sem hann fer
Volvo C30 er í boði með afar öflugri og skemmtilegri 230 hestafla vél, sem fer 0-100 km á aðeins 6,5 sekúndum. Þú þarft ekki að horfa annað í leit að skemmtilegum og sportlegum bíl enda eru gagnrýnendur sammála um að Volvo C30 muni gera usla á markaðnum. Að innan er stíll yfir öllu og „sándið“ úr græjunum er í heimsklassa. Þú getur valið um „Premium“ hljómkerfi með 5x130w ICE digital magnara, Dolby Pro Logic II Surround Sound og 12 hátölurum sem gefa hvorki meira né minna en 910w.
Aðskilin aftursæti
Aftursætin eru tvö og niðurfellanleg. Þau eru að auki aðskilin frá hvort öðru og fyrir framan er gott fótarými. Sætin eru staðsett nokkuð miðlægt í bílnum til að auka rýmistilfinningu farþega og veita þeim gott útsýni fram á við. Bilið á milli sætanna gerir að verkum að hinn sérstaki og þunni miðjustokkur milli framsætanna er sýnilegur í gegnum afturrúðuna.
Vertu í heimsklassa. Komdu í Brimborg og upplifðu nýjan sportlegan bíl frá Volvo.