Volvo C30 • DRIVe
19. maí 2012
Gefðu grænt ljós á framtíðina með Volvo DRIVe
Volvo DRIVe snýst ekki um málamiðlanir heldur skynsamlega nálgun. Þú færð einn visthæfasta bíl sem völ er á, með öllu því öryggi og öllum þeim gæðum sem tilheyra Volvo merkinu. Þú færð hagkvæmni án málamiðlana. Það er öryggi. Volvo öryggi.
Öryggi er lúxus – veldu Volvo öryggi Volvo DRIVe er aðferð Volvo til að tryggja sem minnst áhrif Volvo bíla á umhverfi framtíðarinnar. Það er umhverfi barna okkar sem skiptir okkur mestu máli.
Volvo DRIVe bílarnir hjá Brimborg eru allir útbúnir nýstárlegri start stop tækni sem slekkur á vélinni í hvert sinn sem bíllinn er stöðvaður og settur í hlutlausan gír. Þetta þýðir að Volvo DRIVe er grænn á rauðu ljósi!
Allir Volvo DRIVe eru knúnir tæknilegustu dísilvélum Volvo sem völ er á og jafnframt beinskiptir. Uppskiptiljós fyrir gírskiptingar er í mælaborðinu svo hærri gírhlutföll í 3,4 og 5 gír nýtast til að spara eldsneyti með lægri vélarsnúningi.
Frítt í stæði er lúxus
Svona er leið Volvo til að draga úr útblæstri og eyðslu. Að endurbæta þá tækni sem til staðar er. Þrautreynd tækni tryggir lágan rekstrarkostnað. Þannig má ná fram afar sparneytnum og visthæfum bíl sem kostar þó minna en tvinnbíll í sambærilegum stærðarflokki, líka í rekstri.
Útblástur Volvo S40 DRIVe og Volvo V50 DRIVe með start/stop er aðeins 104 grömm af koldíoxíði á hvern kílómetra (Volvo C30 DRIVe 99 grömm CO2 á hvern kílómetra). Volvo S40 DRIVe og Volvo V50 DRIVe eyða aðeins 3,4 lítrum á hundraði í utanbæjarakstri og aðeins 3,9 lítrum á hundraði í blönduðum akstri. Volvo DRIVe bílar fá því frítt í stæði í Reykjavík í 90 mínútur.
Örugg tækni, betri árangur
Hvernig fer Volvo að þessu? Með því að horfa í hvert einasta atriði sem getur dregið úr eyðslu og útblæstri. Bremsukerfi Volvo DRIVe endurhleður rafgeymi bílsins þegar hemlað er en þannig er hreyfiorka bílsins nýtt til að hlaða rafgeyminn en ekki dísilorka vélarinnar. Fjöðrun Volvo DRIVe hefur verið lækkuð um 1 cm til að draga úr loftmótstöðu. Undirvagninn er sléttari, vindskeiðar eru á skottloki, framstuðara og fyrir framan dekk sem einnig draga úr loftmótstöðu. Volvo DRIVe eru með sérhannaðar álfelgur sem hafa afar litla loftmótstöðu, gírhlutföll eru breytt, dekk eru sérvalin lág-viðnámsdekk og vökvastýri bílsins er af nýrri gerð sem og olían í gírkassanum. Allt er þetta gert til að auka sparneytni Volvo DRIVe og draga úr útblæstri. Leggðu þitt af mörkum til framtíðar. Veldu Volvo DRIVe.
Auk Volvo DRIVe bílanna sem Brimborg býður í dag, Volvo C30, Volvo S40 og Volvo V50 munu Volvo V70 og Volvo S80 einnig verða í boði í DRIVe útgáfu síðar. Volvo XC60 og XC70 eru fáanlegir í DRIVe útgáfu, en þá aðeins með framdrifi og verða því ekki boðnir hér á landi.
Svona gefur þú framtíðinni grænt ljós.
Öryggi er lúxus. Lifðu í lúxus. Veldu Volvo.